Nú er nýlokið fyrri umferð dagsins á Kviku Reykjavíkurskákmótinu í Hörpu. Sextán skákmenn eru enn með fullt hús og línur gætu skýrst frekar í þriðju umferðinni sem fer fram á eftir.
Héðinn Steingrímsson er eini Íslendingurinn með 2 vinninga en hann hefur lagt sína stigalægri andstæðigna að velli. Vignir Vatnar missteig sig lítillega þegar hann náði aðeins skiptum hlut gegn Peter Sowray sem tefldi mjög traust með hvítu.
Auk Vignis hafa Jóhann Hjartarson, Bragi Þorfinnsson og Hjörvar Steinn Grétarsson 1,5 vinning ásamt reyndar fjölda annarra Íslendinga.
Þriðja umferðin hefst klukkan 16:00.
- Auglýsing -















