Tvær umferðir á Kviku Reykjavíkurskákmótinu verða tefldar í dag! Fyrri umferð dagsins hefst kl. 9 og sú síðari kl. 16.
Um það bil helmingur skákanna er beint eða 57 skákir. Hægt er að nálgast þær t.d. á Chess24 og FollowChess.
Ingvar Þór Jóhannesson er með streymi sem hefst þegar liðið er á umferðina.
Skákskýringar á skákstað hefjast í 3. umferð. Þær verða í umsjón Helga Áss Grétarssonar í kvöld og hefjast kl. 18. Verða svo allar umferðar hér eftir nema í morgunumferðinni á sunnudaginn.
Áhorfendur velkomnir í Hörpu til að fylgjast með veislunni!
- Auglýsing -
















