Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2520) og Guðmundur Kjartansson (2450) gerðu báðir jafntefli í 11. og síðustu umferð EM einstaklinga sem fram fór í gær í Terme Catez í Slóveníu.
Hannes gerði jafntefli við ísrealska FIDE-meistaranum Ari Yannay Ben (2417) en Gummi við þýska stórmeistarann Alexander Donchenko (2636).
Hannes hlaut 6½ vinning og endaði í 55.-88 sæti. (61. sæti á oddastigum) og Gummi endaði í 89.-141. sæti (89. sæti á oddastigum). Þýski stórmeistarinn Matthias Bluebaum (2642) varð Evrópumeistari.
Prýðisframmistaða hjá báðum. Frammistaða Hannesar samsvaraði 2568 skákstigum og hækkar hann um 9 stig. Frammistaða Gumma samsvaraði 2598 skákstigum og hækkaði hann um 22 stig.
Alls tóku 317 skákmenn frá 40 löndum þátt í mótinu. Þar af voru 114 stórmeistarar. 20 efstu sætin gáfu keppnisrétt á heimsbikarmótinu í skák á næsta ári. Hannes var nr. 94 í stigaröð keppenda en Guðmundur var nr. 133.















