Níunda og síðasta umferð Kviku Reyjavíkurskákmótsins hefst kl. 11 í dag. Stórmeistararnir Praggnanandhaa (2624), Indlandi, Max Warmerdam (2559), Hollandi, og Mads Andersen (2582), Danmörku eru efstir og jafnir með 6½ vinning. Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2542) er efstur íslensku keppendanna en hann er í skiptu fjórða sæti með 6 vinninga.
Í lokaumferðinn mætast Andersen og Warmerdam, Praggnanandhaa mætir landa sínum Gukesh (2637). Hjörvar teflir við pólska stórmeistarann Lukasz Jarmula (2434).
Hannes Frímann Hrólfsson, framkvæmdastjóri Kviku eignastýringar, leikur fyrsta leik lokaumferðarinnar.
Áhorfendur velkomnir í Hörpuna. Hægt er að fylgjast með helstu skákunum á stórum skjá. Skákskýringar í umsjón Helga Ólafssonar hefjast kl. 13.
Um það bil helmingur skákanna er sýndur beint eða 57 skákir. Hægt er að nálgast þær t.d. á Chess24 og FollowChess.
Ingvar Þór Jóhannesson er með streymi sem hefst þegar liðið er á umferðina.
- Auglýsing -















