Níunda og síðasta umferð Kviku Reykjavíkurskákmótsins er nú í gangi. Rétt í þessu var indverska undrabarnið Praggnanandhaa (2624) að tryggja sér sigur á mótinu. Hann lagði landa sinn D. Gukesh (2637) að velli eftir að hafa snúið tapaðri stöðu sér í vil. Praggnanandhaa er sá yngsti sigurvegarinn í sögu Reykjavíkurskákmótanna til vinna mótið einn. Aðeins 16 ára og mörgum talinn heimsmeistaraefni.
Enn er töluvert að skákum ólokið. Hjörvar Steinn Grétarsson (2542) situr enn að tafli. Vinni hann pólska stórmeistarann Lukasz Jarmula (2434) verður hann meðal þeirra sem skipta með öðru sæti.
Nánari frétt væntanleg.
- Myndir frá Þorsteini Magnússyni
- Myndir frá Hallfríði Sigurðardóttur
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Skákir mótsins
- Auglýsing -














