Skákdeild Fjölnis heldur sitt árlega Sumarskákmót í Rimaskóla n.k. fimmtudag frá kl. 16:30 – 19:00.

Öllum áhugasömum skákkrökkum á grunnskólaaldri er boðið að taka þátt í ókeypis skákviðburði.

Tefldar 6 umferðir með 5.02 umhugsunartíma. Skákstjórar: Páll Sigurðsson og Helgi Árnason

Eldri flokkur – Yngri flokkur – Stúlknaflokkur

Verðlauna-og happadrættis-hátíð í lokin með 40 glæsilegum vinningum sem Hagkaup, Jói útherji, Gullnesti, SAMbíóin og Bókabúðin Grafarvogi gefa á mótið.  Rótarýklúbbur Grafarvogs gefur alla verðlaunabikara. Ókeypis veitingar fyrir alla þátttakendur.

Strætó Leið – 6 gengur alla leið. Skákkrakkar takið tímann frá og skellið ykkur skemmtilegt og spennandi skákmót. Mætið tímanlega til skráningar

Skákdeild Fjölnis

- Auglýsing -