Átta Íslendingar taka þátt á „Prag Chess Festival“ í opna flokknum þeir:
Hannes Hlífar Stefánsson (2532)
Vignir Vatnar Stefánsson (2479)
Hilmir Freyr Heimisson (2351)
Benedikt Briem (2186)
Alexandr Domalchuk-Jonasson (2184)
Alexander Oliver Mai (2183)
Mikael Bjarki Heiðarsson (1703)
Matthías Björgvin Kjartansson (1468).
Vignir Vatnar og Alexander Oliver voru fyrstir að klára og unnu sínar skákir örugglega gegn stigalægri andstæðingum (2050 og 1462).
Hannes Hlífar vann sannfærandi sigur á móti tæplega 2100 stiga Indverja.
Alexandr Domalchuk-Jonasson og Benedikt Briem unnu skákir sínar mjög sannfærandi gegn stigalægri andstæðingum.
Hilmir Freyr fékk unna stöðu gegn 2000 stiga andstæðing en lenti því miður í gamla góða fortressinu og þurfti því að sætta sig við skiptan hlut.
Matthías Björgvin átti flotta skák gegn FIDE meistara og leit lengi vel út fyrir að hann myndi fá eitthvað úr skákinni, en þá mætti gamli skólinn og tók yfir. Tap staðreynd.
Mikael Bjarki fékk erfiða skák gegn sterkum ungum skákmanni með rúmlega 2200 stig og laut í lægra haldi.
Tvöfaldur dagur framundan á morgun þar sem umferðirnar hefjast klukkan 7 og 13 að íslenskum tíma.
Þar til næst.
BKS
Styrktaraðilar „Skákferðar Breiðabliks og MótX til Tékklands 2022“ eru:
Byggingafélaðið MótX, Skákstyrktarsjóður Kópavogs, Skáksamband Íslands, Skákdeild Breiðabliks, Skákfélag Selfoss og nágrennis, Sjóður Sigtryggs glímukappa, Libra lögmenn og GA Smíðajárn

















