Annar dagur í Prag er hafinn og fara tvær umferðir fram í dag.
Mótið klárast svo á þjóðhátíðardaginn sjálfan 17.júní.
Eins og í öllum góðum ævintýrum þá byrjaði ævintýrið með ósköpum en Play ákváðu að aflýsa fluginu á fimmtudaginn vegna vélarbilunar en flogið var snemma í gærmorgun, þar sem þáttastjórnandi Chess After Dark kippti í nokkra spotta og heyrði beint í Birgi Jónssyni forstjóra PLAY. Fyrir áhugasama: (https://www.youtube.com/watch?v=1mz7W4aGILk&t=379s)
Enn að mótinu sjálfu!
Alexandr Domalchuk-Jonasson vann frábæran sigur með svörtu gegn 2400 stiga manni sem er einungis 12 ára gamall! Virkilega vel tefld skák hjá honum, og er hann með fullt hús vinninga.
Hannes Hlífar vann sannfærandi sigur á 2250 stiga Indverja og er að tefla vel og er enn með fullt hús.
 
Vignir Vatnar tapaði í einungis 20 leikjum gegn 2200 stiga Brasilískri skákkonu sem tefldi reyndar þessa skák fáránlega vel – okkar maður sá í raun aldrei til sólar.
Áfram gakk, áfanga möguleikar líklega úr sögunni en nú hefur VVS bara gaman að þessu og reynir að lágmarka skaðann og hjálpar hinum í hópnum enda er VVS að sanna sig sem algjörlega frábær þjálfari.
Matthías Björgvin og Mikael Bjarki töpuðu báðir gegn Fidemeisturum og hafa hingað til verið nokkuð óheppnir með paranir en ég er fullviss um að þeir koma sér báðir á blað í þriðju umferð.
Alexander Oliver Mai tapaði gegn sterkum skákmanni en Alex stóð betur en klúðraði svo skákinni og „fór niður í logum“ eins og hann orðaði það sjálfur.
Hilmir Freyr tapaði gegn töluvert stigalægri andstæðing og er ekki að byrja mótið nægilega vel.
Ég er sannfærður um að hann nýti sér „Monrad gambítinn“ í næstu umferðum og verður kominn á efstu borðin áður en langt um líður.
Benedikt Briem tefldi gegn Tékkneskum stórmeistara og stóð vel í honum en lenti peði undir í endatafli og sigldi þessu heim.
Næsta umferð hefst núna klukkan 15 að staðartíma.
Skákdeild Breiðabliks vill að sjálfsögðu þakka þeim kærlega fyrir sem gerðu okkur kleyft að koma hingað að tefla:

Styrktaraðilar „Skákferðar Breiðabliks og MótX til Tékklands 2022“ eru:

Byggingafélagið MótX, Skákstyrktarsjóður Kópavogs, Skáksamband Íslands, Skákdeild Breiðabliks, Skákfélag Selfoss og nágrennis, Sjóður Sigtryggs glímukappa, Libra lögmenn og GA Smíðajárn.

- Auglýsing -