Þann 27. júlí næstkomandi verður Guðmundur Ingvi Jóhannsson formaður Skáksambands Austurlands áttræður. Guðmundur Ingvi hefur um langt árabil verið einn ötulasti skákmaður og skipuleggjandi taflmennsku á Austurlandi.
Í tilefni þessara tímamóta verður blásið til skákmóts sunnudaginn 31. júlí og hefst það kl. 13. Teflt verður á Egilsstöðum en mótsstaður hefur ekki verið ákveðinn en hann ræðst af fjölda þátttakenda. Umhugsunartími verður 15 mínútur á mann og stefnt að því að hafa 7 umferðir en það ræðst þó einnig af fjölda þátttakenda.
Áhugasamir eru beðnir að tilkynna þátttöku til Sverris Gestssonar í síma 822-1748 eða á netfangið sverrirg57@gmail.com.
- Auglýsing -
















