Jón L. Árnason vann sína skák í 5. umferð.

Íslenska liðið góðan 3-1 sigur á Þjóðverjum í 5. umferð HM öldungasveita sem fram fór í gær. Jón L. Árnason og Þröstur Þórhallsson unnu sínar skákir en Helgi Ólafsson og Jóhann Hjartarson gerðu jafntefli

Íslenska liðið er nú í 4. sæti með 8 stig og 13½ vinning.

Frídagur er í dag. Ísland mætir sterkri sveit Bandaríkjamanna á morgun en sú sveit er sú næststerkasta á pappírnum. Viðureignin verður sýnd beint og hefst útsending kl. 13:00.

23 sveitir taka þátt í flokki 50+. Sveit Íslands er sú fjórða stigahæsta.

- Auglýsing -