Tímaritið Skák er komið út. Þetta er í fyrsta skipti síðan 2018 að Skák kemur út.
Blaðið er í senn vandað og skemmtilegt. Meðal efnis er ákaflega fróðlegt viðtal við Þór Valtýsson auk ýmissa greina eftir fjölbreyttan hóp höfunda.
Þeir sem greiddu áskriftargjald Skáksambandsins 2021-22 fá blaðið frítt. Aðrir geta keypt blaðið í lausasölu á aðeins 2.500 kr.
Hef ég greitt áskriftargjaldið?
Hægt verður að nálgast blaðið á næstu tveimur þriðjudagsmótum TR á milli 19:30 og 21:30. Einnig verður hægt að nálgast það Íslandsmóti skákfélaga í Egilshöll á meðan Íslandsmóti skákfélaga stendur 14.-16. október nk.
Viðtal við Þór – fyrsta blaðsíða
Til stendur að gefa út blaðið tvisvar á ári í kringum Íslandsmót skákfélaga. Næsta tölublað kemur því út í mars 2023.
Efnisyfirlit
- Ritstjórarabb – Gauti Páll Jónsson
- Kviku Reykjavíkurskákmótið – Ingvar Þór Jóhannesson
- Íslandsmótið í skák 2022 – Ingvar Þór Jóhannesson
- Sumarmótaröð Reykjavíkur – Gauti Páll Jónsson
- Hrafn Jökulsson – minningarorð
- Ferð til Kragerö – Kristján Dagur Jónsson
- Viðtal við Þór Valtýsson – Björn Ívar Karlsson og Stefán Bergsson
- Frægmótið 1990 – Einar Trausti Óskarsson
- Kvennaskák – Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
- Hvers virði er biskup? – Björn Ívar Karlsson
- Mót og æfingar og höfuðborgarsvæðinu
- Galvaskir gamlingar – Einar S. Einarsson
- Skákmót erlendis – Stefán Bergsson
- Hálf öld liðin frá einvígi allra tíma – Einar S. Einarsson
- Furðuþrautir – Jón Viktor Gunnarsson
- Íslandsmót skákfélaga – Gauti Páll Jónsson
Ritnefnd auk Gauta skipuðu Björn Þorfinnsson, Björn Ívar Karlsson og Stefán Bergsson.
Gauti Páll Jónsson, ritstjóri
Tímaritið sem ég hef haft hugann við í marga mánuði loks komið út. Þvílíka spennufallið, en líka stolt og ánægja. Lífið er svo gaman!
Gunnar Björnsson, forseti SÍ
Gríðarlega vandað tímarit. Virkilega vel gert hjá Gauta og félögum hans í ritnefnd. Áfram Gauti.

















