Nú er ljóst hvaða átta keppendur tefla á HM í Fischer-slembiskák sem fram fer í Hotel Natura (áður Loftleiðum) dagana 25.-30. október. Áttundi og síðasti keppandinn verður þriðji stigahæsti skákmaður heims, Ian Nepomniachtchi, en hann var tilnefndur af FIDE. Keppendur á mótinu er því sem hér segir:
- Wesley So – heimsmeistari í Fischer-slembiskák
- Magnús Carlsen – heimsmeistari í skák
- Hjörvar Steinn Grétarsson – val skipuleggjenda
- Vladimir Fedoseev – undankeppni á Chess.com
- Matthias Bluebaum – undankeppni á Chess.com
- Hikaru Nakamura – undankeppni á LiChess
- Nodirbek Abdusattorov- undankeppni á LiChess
- Ian Nepomniachtchi – val FIDE
Sem fyrr auglýsa mótshaldarar eftir sjálfboðaliðum.
- Auglýsing -

















