Skákhofið í Vin. Höfuðstöðvar Vinaskákfélagsins

Vinaslagur 1 verður haldið á Aflagranda 40, Laugardaginn 5 nóbvember kl. 14:00.

Þetta er fyrsta skákmótið af 4 núna í nóvember en 2 næstu verða haldin á Chess.com.

4 og síðasta verður svo haldið líka á Aflagranda 40.

Tefldar verða 7 umferðir með 4 mín + 2 sek.

Skákdómari verður Róbert Lagerman en mótstjóri er Hörður Jónasson.

Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

Stutt hlé verður eftir 4 umferðir og verða starfsmenn með kaffi og vöfflur til sölu á staðnum.

Verðlaun verða glæsileg:

Sigurvegari í hverju móti fær peningaverðlaun að upphæð 2.500 kr.

Efstu 3 skákmenn fá líka Gull, Silfur og Brons verðlaunapeninga.

Ennfremur tengjast öll mótin saman, þannig að 1. Sætið fær 10 stig, 2. Sætið 8 stig, 3. sætið 6 stig, 4. sætið 4 stig og 5. sætið fær 2 stig.

Samanlögð stig úr öllum mótunum fær efstu maður 10.000 kr.

Þegar skráðir menn:  Chess-Results Server Chess-results.com – Vinaslagur 1 hjá Vinaskákfélaginu

Einnig getið þið skráð ykkur á staðnum.

Allir velkomnir!!

Skráningarformið er á heimasíðu félagsins.

Sjá: http://www.vinaskak.is/vinaslagur-1-hja-vinaskakfelaginu-2022/

Kv. Stjórn Vinaskákfélagsins.

- Auglýsing -