EM ungmenna hófst í dag, í Antalya í Tyrklandi. Keppendur, og fylgdarfólk, gista á Pine Beach Belek, sem er glæsilegt hótel-resort við Miðjarðarhafið. Evrópumótið fer fram í mjög stórum og rúmgóðum keppnissal sem stendur við hótelið. Aðstæður eru því allar hinar bestu og Tyrkir, sem hafa góða reynslu í framkvæmd móta af þessu tagi, búa vel að hlutunum.

Keppnissalurinn rúmar vel alla aldursflokkana. Mynd: Heimasíða mótsins

Teflt er í sex aldursflokkum, u8, u10, u12, u14, u16 og u18.  Aldursflokkunum er svo skipt í stúlknaflokka og opna flokka.

Sextán íslenskir keppendur tefla á mótinu:

Stúlknaflokkar
U12 ára – Guðrún Fanney Briem (1505)
U14 ára – Katrín María Jónsdóttir
U16 ára – Iðunn Helgadóttir (1591)

Opnir flokkar
U10 ára – Birkir Hallmundarson (1370)
U10 ára – Oliver Kovacik (1243)
U10 ára – Örvar Hólm Brynjarsson (1286)
U12 ára – Jósef Omarsson (1528)
U12 ára – Sigurður Páll Guðnýjarsson (1553)
U14 ára – Matthías Björgvin Kjartansson (1597)
U14 ára – Mikael Bjarki Heiðarsson (1747)
U16 ára – Adam Omarsson (1777)
U16 ára – Benedikt Briem (2175)
U16 ára – Benedikt Þórisson (1764)
U16 ára – Gunnar Erik Guðmundsson (1828)
U16 ára – Ingvar Wu Skarphéðinsson (1961)
U18 ára – Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2318)

Þjálfarar og fararstjórar hópsins eru Helgi Ólafsson, Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson.

Hluti íslenska hópsins við upphaf 1. umferðar. Frá vinstri: Matthías Björgvin, Mikael Bjarki, Ingvar Wu, Benedikt, Iðunn og Katrín María. Mynd: Hrund Þrándardóttir
Hluti hinna þjóðlegu, tyrknesku tónlistaratriða við upphaf mótsins. Mynd: Guðný Sigurðardóttir

Stór hluti íslensku keppendanna tefldi upp fyrir sig stigalega í fyrstu umferð og róðurinn var því nokkuð erfiður.

Gunnar Erik landaði góðum sigri gegn Hubert Backiel (2200). Guðrún Fanney, Benedikt Briem og Aleksandr gerðu öll jafntefli. Aðrir töpuðu. Sigurður Páll sló Henry Edward Tudor (1943) algjörlega út af laginu með frábærri byrjunartaflmennsku en missti af vinningsleið í flækjunum og tapaði í erfiðu endatafli.

Frændurnir Gunnar Erik og Sigurður Páll sýndu góða takta í 1. umferð
Samheldu systkinin Benedikt og Guðrún Fanney Briem

Pörun 2. umferðar, sem hefst kl. 12:00 að íslenskum tíma á morgun:

Heimasíða mótsins
Beinar útsendingar
Chess-results

- Auglýsing -