Fimm umferðum er lokið hér á Evrópumóti ungmenna í Antalya í Tyrklandi. Sextán íslenskir keppendur taka þátt en einungis 14 þeirra tóku þátt í umferð dagsins þar sem við fengum tvær yfirsetur. Mikael Bjarki og Benedikt fengu vinning fyrir sínar yfirsetur en auk þess unnu þau Matthías Björgvin, Iðunn og Alexander Domalchuk-Jonasson sigur í sínum skákum. Örvar Hólm, Jósef, Benedikt Briem, Ingvar Wu og Gunnar Erik gerðu svo jafntefli í sínum skákum. Aðrir þurftu að lúta í dúk að þessu sinni.

Iðunn Helgadóttir vann sína aðra skák í röð í U16 stúlkna. Að þessu sinni lá danska skákkonan Caroline Bruntse Lindegaard í valnum. Iðunn beitti rólegu Colle-system í byrjuninni en blés svo til sóknar á kóngsvæng. Einhverjir möguleikar voru á beittari leikjum í sókninni en á endanum réði sú danska ekki við innrás Iðunnar.

Matthías Björgvin Kjartansson hefur að mörgu leiti verið seinheppinn á mótinu og úrslitin ef til vill ekki verið í takt við taflmennskuna. Matthías er hinsvegar fullur sjálfstrausts og hefur ekki látið úrslitin hafa nein áhrif á sig. Hann sýndi mikinn baráttuvilja í dag í U14 opna flokknum og uppskar eins og hann sáði. Mikill tími fór í undirbúning á afbrigðum í Grunfelds-vörn en andstæðingur hans, Yonathan Uritsky (2216) hafði einmitt beitt þeirri byrjun gegn Gunnari Erik fyrir þremur árum og í fjölda skáka. Hann kom hinsvegar á óvart með Nimzo-indverskri vörn. Matthías lét það lítið á sig fá og tefldi af miklu sjálfsöryggi og uppskar að lokum vinning eftir harða baráttu. Úrslitin eru eftirtektarverð í ljósi þess að Ísraelsmaðurinn er 600 elóstigum hærri á stigum en Matthías. Ljóst er þó að þessi munur er einungis á orði en ekki á borði, sérstaklega borði Matthíasar!

Alexander Domalchuk-Jonasson hefur staðið sig best íslensku keppendanna en hann teflir í U18 opnum flokki. Í dag tefldi hann við hinn úkraínska Olexiy Bilych. Alexander tefldi af krafti gegn kóngsindverskri vörn og náði að nýta sér undirbúning sem beið hinnar hollensku Robers fyrr í mótinu gegn fóstbróður sínum frá Úkraínu. Peðsfórn (eða tap?) Olexiy gaf líklega ekki nægjanlegar bætur og Alexander vann svo annað peð og þegar Olexiy sá fram á að eiga nákvæmlega ekkert mótspil gafst hann upp í stöðunni. Flottur og á yfirborðinu tiltölulega auðveldur sigur hjá Alexander sem hefur aðeins leyft tvö jafntefli á mótinu.

Alexander hefur 4 vinninga af 5 mögulegum í U18 en næstur Íslendinga er Benedikt Briem með 3 vinninga eftir baráttujafntefli í dag. Með 2,5 vinning og 50% eru Birkir Hallmundarson í U10 og Guðrún Fanney í stúlkna U12 og bæði þrátt fyrir tap í dag. Jósef Ómarsson hefur einnig 2,5 vinning eftir jafntefli í dag í U12.

Pörun 6. umferðar sem hefst 12:00 á morgun. Aleksandr verður áfram í beinni útsendingu á morgun og ætir spænskum alþjóðlegum meistara. Almennt séð fá íslensku keppendurnir viðráðanlegar paranir og klárlega eru sóknarfæri að ná í flesta vinninga sem náðst hafa í einni umferð á morgun. Fram til sigurs!

Heimasíða mótsins
Beinar útsendingar
Chess-results

- Auglýsing -