Anna Katarina vann í dag. Mynd;: Jón Fjörnir

Stelpurnar í flokki 10 ára og yngri, Anna Katarina Thoroddsen (1081) og Soffía Arndís Berndsen unnu báðar í dag í áttundu og næstsíðustu umferð EM ungmenna. Alls komu þrír vinningar af fimm mögulegum í hús í dag en bæði Gunnar Erik Guðmundsson (1579), sem teflir í flokki 12 ára og yngri, Arnar Milutin Heiðarsson (1749), sem teflir í flokki 16 ára og yngri gerðu jafntefli. Vignir Vatnar Stefánsson (2260), sem einnig teflir í flokki 16 ára og yngri, tapaði.

Gunnar Erik gerði jafntefli í dag: Mynd Jón Fjörnir

Vignir er engu að síður hæstur krakkanna að vinningum hefur 4½ vinning. Gunnar Erik hefur 4 vinninga, Anna Katarina 3½ vinning, Soffía Arndís 3 vinninga og Arnar 2½ vinning.

Arnar Milutin gerði jafntelfi í dag. Mynd: Jón Fjörnir

Mótinu lýkur á morgun með níundu umferð.

Upplýsingar um árangur íslensku keppendanna má finna á Chess-Results.

- Auglýsing -