Vel heppnað, skemmtilegt, sterkt, strembið en jafnframt vel teflt Meistaramót Skákskóla Íslands 2022 – Unglingameistaramót Íslands 2022 – U22 lauk í gær. Tveir sigurvegarar voru krýndir, annar Unglingameistari Íslands U22 og hinn meistari Skákskóla Íslands.

Sigurvegari mótsins varð Hilmir Freyr Heimisson með 5,5 vinning úr skákunum 6, sannarlega glæsilegur árangur. Sigur Hilmis var sannfærandi og sanngjarn og skein í gegn geta hans og vilji til að tefla langar og krefjandi skákir. Hilmir er Unglingameistari Íslands 2022 í U22 flokki og tryggir það honum sæti í næsta landsliðsflokki í skák.

Hilmir tekur við verðlaunagripnum og er Unglingameistari Íslands 2022

Í lokaumferðinni lagði Hilmir að velli Arnar Milutin Heiðarsson sem hefði með sigri í skákinni unnið titilinn sjálfur. Hilmir fékk betra tafl úr byrjuninni þegar hann svaraði f3 leik hvíts með …c5 og náði að umbreyta stöðuyfirburðum yfir í peðsvinning og kláraði svo tæknihilðina í endatafli. Arnar endar því í 3. sætinu sem er fín niðurstaða hjá honum.

Úrslitaskákin milli Arnar og Hilmis Freys
Aleksandr tekur við verðlaunagripnum góða og fær nafn sitt ritað á gripinn sem Meistari Skákskóla Íslands

Sigurvegari Meistaramóts Skákskólans varð að lokum Aleksandr Domalchuk-Jonasson þar sem Hilmir er „kominn á aldur“ hvað varðar Skákskólann. Aleksandr hefur komið eins og stormsveipur inn í íslenskt skáklíf og sannarlega verið „á eldi“ undanfarið eins og unga fólkið segir. Hann hefur varla stigið feilspor en varð að láta sér lynda eitt feilspor gegn Arnari Milutin og þar með 2. sætið á mótinu með 4,5 vinning.

Í lokafumferðinni varð Stephan Briem að lúta í dúk gegn Aleksandr. Örugg byrjanataflmennska að vanda hjá Aleksandr og hann nýtti sín færi eftir að Stephan gaf drottningu fyrir hrók og mann sem reyndist ekki nóg.

Iðunn vann stúlknaverðlaunin

Vegleg stúlknaverðlaun voru í boði og þar varð Iðunn Helgadóttir hlutskörpust. Sanngjarnt hjá Iðunni sem er greinilega í mikilli framför og hefði með smá heppni getað landað góðum höfuðleðrum á þessu móti.

Hún vann skemmtilegan sóknarsigur í lokaumferðinni.

Dawid Kolka var hlutskarpastur í flokki U2000

Hlutskarpastur keppenda undir 2000 elóstigum varð Dawid Kolka. Dawid sýndi á þessu móti að hann á að tefla miklu meira. Mjög skemmtileg skák snemma móts sem hann tefldi gegn Arnari Milutin og svo hefði Dawid átt að fá fleiri vinninga úr öðrum skákum sem hann hefði vafalaust náð ef „ryðið“ væri minna.

Hann lagði hinn unga og efnilega Josef Omarsson í lokaumferðinni og var skemmtilegt hvernig „búðinni var lokað“ á svörtu reitunum í þessari skák.

Benedikt hlutskarpastur í U1800

Bestum árangri skákmanna undir 1800 stigum náði Benedikt Þórisson. Eins og flestir í hópnum er hann að stíga framfarastökk þessi misserin og ekki verður langt að bíða þar til 2000 elóstigamúrinn verður í augsýn.

Í lokaumferðinni lagði hann Guðrúnu Fanney Briem að velli.

Skemmtilegt mót að baki. Vel var að verki staðið hjá Helga Ólafssyni og Skákskólanum. Allar skákir voru í beinni útsendingu og vel var gert við keppendur í veitingum og mat. Lokaumferðinni var flýtt um 30 mínútur og þar með var verðlaunaafhendingu lokið tímanlega fyrir frábæran úrslitaleik Argentínu og Frakklands. Heimildir herma svo að skákþyrstir unglingar hafi farið beint í að tefla á netinu og fylgjast svo með einvígi Carlsen og Nakamura! Það væri veisla ef allir sunnudagar væru svona!!

Lokastaða mótsins:

- Auglýsing -