Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er 500kr. en frítt er fyrir 17 ára og yngri.

Veitt eru verðlaun, 3000 króna inneign í Skákbúðina, fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance).

——-

Fidemeistarinn knái Dagur Ragnarsson fékk fullt hús vinninga á Þriðjudagsmótinu þann 13. desember síðastliðinn. Dagur tefldi örugglega og segja má að úrslitaumferðin hafi verið í þeirri fjórðu, þegar Dagur lagði Ólaf Thorsson af velli. Ólafur og Gauti Páll Jónsson voru næstir í röðinni með fjóra vinninga og Arnar Ingi Njarðarson með þrjá og hálfan. Dagur hlaut að verðlaunum 3000 króna inneign í Skákbúðina ásamt Tómasi Sindra Leóssyni (1132) með þrjá vinninga, en Tómas var með bestan árangur miðað við eigin stig.  22 skákmenn tóku þátt í mótinu að þessu sinni. Þetta er annað skiptið sem Ingvar Þór Jóhannesson hélt utan um beinar útsendingar á meðan mótinu stóð, en skákir efstu sex borðana voru sýndar út live á lichess.

Öll úrslit og stöðu mótsins má nálgast á chess-results.

Næsta Þriðjudagsmót er í kvöld, þann 20. desember og hefst stundvíslega klukkan 19:30. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12.

- Auglýsing -