HM í atskák hófst í dag með fimm fyrstu umferðunum á HM í atskák í Almaty í Kasakstan. Magnús Carlsen (2834) er efstur ásamt fjórum öðrum með 4½ vinning. Eftir ásamt heimsmeistaranum eru Rússinn Vladimir Fedoseev (2741), Indverjinn Arjun Erigaisi (2628) og Hollendingurinn Jorden Van Foreest (2693).
Arjun Erigaisi is the only player who held Magnus Carlsen to a draw on Day 1 of the World Rapid Championship. #RapidBlitz
📷 by Anna Shtourman pic.twitter.com/jfYcHth1Pd
— International Chess Federation (@FIDE_chess) December 26, 2022
— International Chess Federation (@FIDE_chess) December 26, 2022
Á morgun verða tefldar umferðir 6-9 af alls 13. Taflmennskan hefst kl. 9 í fyrramálið.
Í kvennaflokki eru tefldar 11 umferðir og fóru fjórar fyrstu umferðirnar fram í dag. Efst er rússneska skákkonan Valentina Gunina (2389) með fullt hús. Fimm skákkonur eru í 2.-6. sæti með 3½ vinning.
Day 1 of the Women’s Rapid Championship has concluded after four rounds of play. Valentina Gunina is the sole leader with a perfect score; Tan Zhongyi, Leya Garifullina, Humpy Koneru, Elina Danielian and Gunay Mammadzada are trailing half a point behind.
📷: Anna Shtourman pic.twitter.com/cKW1u839vI
— International Chess Federation (@FIDE_chess) December 26, 2022
Taflmennskan í kvennaflokki hefst einnig kl. 9. Þar verða tefldar umfeðir 5-8.
Meðal keppenda eru flestir sterkustu skákmenn heim. Þar á meðal Magnús Carlsen, Hikaru Nakamura, Fabiano Caruana, Ian Nepomniachiatchi og núverandi heimsmeistari, Nodirbek Abdusattorov. Í kvennaflokki má finna flestar sterkustu skákkonur heims. Alexandra Kosteniuk, Kateryna Lagona, Tan Zhongyi og Aleksandra Goryachkina.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (Opinn flokkur)
- Beinar útsendingar (Kvennaflokkur)
- Bein lýsing (FIDE)
- Bein lýsing (Chess24)


















