Magnús Carlsen að tafli Mynd: Lennart Ootes.

Dagur tvö í HM í atskák fór fram í dag í Almaty í Kasakstan. Magnús Carlsen (2834) er efstur í opnum flokki með 7½ vinning að loknum 9 umferðum.  Í 2.-4. sæti eru Rússinn Vladimir Fedoseev (2741), Úsbekinn Nobirbek Abdusattorov (2676) og Þjóðverjinn Vincent Keymer (2590) með 7 vinninga. Allt skákmenn hafa teflt á Íslandi síðustu misseri.

HM í atskák lýkur á morgun með lokaumferðunum fjórum. Taflmennskan hefst kl. 9 í fyrramálið. HM í hraðskák hefst svo á fimmtudaginn.

Staðan í opnum flokki.

Í kvennaflokki er lokið átta umferðum af ellefu. Efstar eru Tan Zhongyi (2502), Kína, Aleksandra Goryachkina (2484), Rússlandi, og Shri Savitha (2311).

Taflmennskan í kvennaflokki hefst einnig kl. 9 á morgun. Þar verða tefldar þrjár síðustu umferðirnar.

Staðan í kvennaflokki.

Meðal keppenda eru flestir sterkustu skákmenn heim. Þar á meðal Magnús Carlsen, Hikaru Nakamura, Fabiano Caruana, Ian Nepomniachiatchi og núverandi heimsmeistari, Nodirbek Abdusattorov.  Í kvennaflokki má finna flestar sterkustu skákkonur heims. Alexandra Kosteniuk, Kateryna Lagona, Tan Zhongyi og Aleksandra Goryachkina.

- Auglýsing -