Önnur umferð Skákþings Reykjavíkur fór fram í gær. Tólf skákmenn eru efstir og jafnir með fullt hús. Það eru:
Tölvert var um óvænt úrslit og má þar helst nefna að Jóhann H. Ragnarsson (1900) vann alþjóðlega meistarann Vignir Vatnar Stefánsson (2458) á fyrsta borði. Adam Omarsson (1693) hafði betur gegn móður sinni Lenku Ptácníková (2104) og Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson (1742) lagði Gauta Pál Jónsson (2045) að velli.
Úrslit 2. umferðar má finna á Chess-Results.
Þriðja umferð fer fram annað kvöld og hefst kl. 18:30. Pörunina má finna á Chess-Results.
- Auglýsing -
















