Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er 500kr. en frítt er fyrir 17 ára og yngri.

Veitt eru verðlaun, 3000 króna inneign í Skákbúðina, fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance).

————

Torfi Leósson hafði nokkuð öruggan sigur á fjölmennasta Þriðjudagsmótinu til þessa á árinu. Af þeim 40 þátttakendum sem mættu til leiks voru, eftir 3. umferð, fimm enn með fullt hús en þegar ein umferð var eftir voru tveir enn í þeirri stöðu, Torfi og Kristófer Orri Guðmundsson. Í úrslitaskákinni þeirra á milli, missteig Kristófer sig í byrjuninni og sá ekki mjög mikið til sólar eftir það. Enn og aftur er ánægjuefni hvað margir stigalausir mættu til leiks, en margir þeirra munu fyrr en síðar fá stig með þessu áframhaldi. Torfi hreppti þannig 1. sætið en Kristófer varð nr. 2, efstur sex keppenda með fjóra vinninga. Gjafabréf fyrir úttekt í Skákbúðinni fengu Torfi sem sigurvegari en einnig Ólafur Örn Ólafsson í 8. sæti fyrir bestan árangur miðað við frammistöðustig.

Önnur úrslit og lokastöðu má annars sjá hér.

Næsta atskákmót verður þriðjudagskvöldið 7. febrúar og hefst að venju kl. 19:30 í Skákhöll TR í Faxafeni. Tefldar eru fimm umferðir, tímamörk eru 105 mínútur með 5 sekúndna viðbótartíma.

Af heimasíðu TR.

- Auglýsing -