Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2461) er eini fulltrúi Íslands á EM einstaklinga sem fram fer í Vrnjacka Banja í Serbíu.
Vignir vann Tyrkjann Necmeetin Korkmaz (2106) í fyrstu umferð sem fram fór í gær. Í 2. umferð sem fram fer í dag teflir hann við búlgarska stórmeistarann Ivan Cheparinov (2661).
Gríðarleg þátttaka er á mótinu en þátt taka 484 skákmenn frá 40 löndum. Þar af eru 126 stórmeistararar. Vignir er nr. 152 í stigaröð keppenda en 23 efstu ávinna sér keppnisrétt í heimsbikarmótinu í skák.
- Auglýsing -

















