Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2461) er eini fulltrúi Íslands á EM einstaklinga sem fram fer í Vrnjacka Banja í Serbíu.
Vignir Vatnar vann ítalska stórmeistarann Luca Jr Moroni (2578) í 5. umferð sem fram fór í gær. Vignir hefur 4 vinninga og er í 6.-43. sæti.
Moroni hafði fórnað skiptamun í gær. Vignir átti leik í þessari stöðu.
32. Hc7! Fórnar skiptamuninum til baka á hárréttum tíma. 32…Bc8+ 33. Kg2 Rd5 34. Ha7 Rxe3 35. Bxe3 Be6 37. Bxg5 og sterk staða hvíta frípeðsins á d-línunni tryggði Vigni sigur skömmu síðar.
Sjötta umferð fer fram í dag. Vignir mætir þá Kirill Svevchenko (2668) sem teflir undir fána Rúmeníu en er einn fjöldamargra Úkraínumanna sem hefur flúið land.
Bein slóð á skákina sem hefst kl. 14:15.
Gríðarleg þátttaka er á mótinu en þátt taka 484 skákmenn frá 40 löndum. Þar af eru 126 stórmeistararar. Vignir er nr. 152 í stigaröð keppenda en 23 efstu ávinna sér keppnisrétt í heimsbikarmótinu í skák.















