Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2461) er eini fulltrúi Íslands á EM einstaklinga sem fram fer í Vrnjacka Banja í Serbíu.
Vignir Vatnar vann miðaldra serbneskan FIDE-meistara í 4. umferð gær að nafni Bojan Tordorovic (2249). Vignir hefur 3 vinninga og er í 27.-93. sæti.
Þessi staða kom upp eftir 36. leik hvíts.
Vignir lék 36….Hf8! Óþægilegur leikur fyrir hvítan í tímahraki. Serbinn hefði getað varist með 37. Kg3 eða 37. Kg1 en datt ekki niður á þá leiki með klukkuna tikkandi og lék 37. Rxf8. Vignir lék 37…Dxf4+ og vann í 45. leikjum.
Fimmta umferð fer fram í dag. Vignir mætir þá ítalska stórmeistaranum Luca Jr Moroni (2578).
Skákin verður sýnd beint á vefnum.
Gríðarleg þátttaka er á mótinu en þátt taka 484 skákmenn frá 40 löndum. Þar af eru 126 stórmeistararar. Vignir er nr. 152 í stigaröð keppenda en 23 efstu ávinna sér keppnisrétt í heimsbikarmótinu í skák.
















