Aukin skákáhugi hérlendis undanfarið fer vart framhjá neinum. Í gær var það svo að 117 manns tefldu á þremur mismunandi mótum!
Á þriðja móti Barion-mótaraðarinnar mættu 40 manns. Hannes Hlífar Stefánsson kom sá og sigraði. Mótinu verður gerð betri skil síðar í dag.
Á þriðjudagsmóti TR, sem fram fór á sama tíma, mættu 50 manns! Metþátttaka. Ólafur B. Þórsson vann mótið eftir harða baráttu við útvarpsmanninn, Kristján Örn Elíasson.
Heldri skákmenn (60+) létu sig ekki eftir vanta. 27 manns mættu hjá Ásum í Stangarhyl. Þar hafði Bragi Halldórsson sigur.
Lokastaðan

- Auglýsing -














