Tvær umferðir fara fram á Reykjavíkurskákmótinu í dag sem fram fer í boði Kviku eignastýringar og Brims.
Fimmta umferð mótsins hefst kl. 9 og sjötta umferð kl. 16.
Í fimmtu umferð teflir Hjörvar Steinn Grétarsson (2538) sem er efstur Íslendinga með 3½ vinning við tyrkneska stórmeistarann (ekki þýska fótboltamanninn) Emre Can (2600).
Skákskýringar í umsjón alþjóðlega meistarans Dags Ragnarssonar hefjast kl. 11. Skákskýringar sjötta umferðar hefjast um kl. 18.
Rétt er að minna á að á sunnudaginn verður norski skákrithöfundurinn Øystein Brekke með fyrirlestur um bók sína um Friðrik Ólafsson kl. 14.
- Mótið á chess-results
- Myndaalbúm (Þorsteinn Magnússon)
- Myndaalbúm (Hallfríður Sigurðardóttir)
- Útsendingar skáka á Chess.com
- Útsendingar skáka á Chess24
- Áhrifavaldar sem sýna frá mótinu:
- https://www.twitch.tv/annacramling
- https://www.twitch.tv/botezlive
- https://www.twitch.tv/gingergm
- https://www.twitch.tv/thebelenkaya
- Auglýsing -















