Séð yfir keppnissalinn. Mynd: Halla

Það verður nóg að gera í Hörpu í dag. Sjöunda umferð Reykjavíkurkákmótsins sem er í boði Kviku eignastýringar og Brims hefst kl. 15 í dag.

Pörun 7. umferð

Stórmeistarinn, Guðmundur Kjartansson (2402), sem er efstur íslensku keppendanna með 4½ vinning teflir við ungverska stórmeistarann Tamas Banusz (2616).

Skákskýringar Helga Áss Grétarssonar hefjast um kl. 17.

Ýmisilegt annað er um að vera á morgun í Hörpu á morgun. Klukkan 14 hefst fyrirlestur Øystein Brekke um bók sína um feril Friðriks Ólafssonar. Sjá hér. 

Klukkan 20:30 hefst svo Harpa Blitz í umsjón þeirra CAD-bræðra. Án efa má búast við afar góðri þátttöku.

 

- Auglýsing -