Sólin skein skært á Vöglum í gær. Keppendur voru því einkar brosmildir. Sennilega hefur Hermann bóndi sagt einhvern skemmtilegan brandara. Mynd: Goðinn.

Smári Sigurðsson vann sigur á Maíhraðskákmóti Goðans 2023 sem fram fór að Vöglum í Vaglaskógi í gær. Smári fékk 5,5 vinninga af 7 mögulegum. Rúnar ÍsleifssonKári Arnór Kárason og Jakob Sævar Sigurðsson komu næstir með 5 vinninga hver, en Rúnar hreppti silfrið og Kári Arnór bronsið, eftir oddastiga útreikning.

Tefldar voru 7 umferðir og voru tímamörk 5 mín + 5 sek/leik í viðbótartíma. 15 keppendur tóku þátt í mótinu sem er næst fjölmennasta mót hjá Goðanum á tímabilinu, en mótið markaði endalok skáktímabilsins 2022-23. Mótið á chess-results

Lokastaðan
Rk. SNo Name sex FED Rtg Club/City Pts.  TB1  TB2  TB3 Rp
1 1
Smari, Sigurdsson ISL 1939 Goðinn 5,5 0 5 31 1698
2 3
Runar, Isleifsson ISL 1784 Goðinn 5 1 5 30 1568
3 12
Kari Arnor, Karason ISL 0 Goðinn 5 1 5 27,5 1643
4 2
Jakob Saevar, Sigurdsson ISL 1862 Goðinn 5 1 4 30 1557
5 7
Kristjan Ingi, Smarason ISL 1376 Goðinn 4,5 0 4 30,5 1614
6 8
Kristijonas, Valanciunas LTU 1256 Goðinn 4 0 4 25,5 1504
7 4
Hermann, Adalsteinsson ISL 1591 Goðinn 4 0 4 21,5 1274
8 6
Jon Adalsteinn, Hermannsson ISL 1405 Goðinn 4 0 3 22 1292
9 5
Aevar, Akason ISL 1435 Goðinn 3,5 0 3 25 1293
10 9
Magnus Ingi, Asgeirsson ISL 0 Goðinn 3 2 2 25 1129
11 10
Ari, Ingolfsson ISL 0 Goðinn 3 1 2 21,5 1177
12 14
Asgeir, Magnusson ISL 0 Utan félags 3 0 2 18,5 1010
13 11
Eythor Kari, Ingolfsson ISL 0 Goðinn 2,5 0 1 17,5 948
14 15
Sigmundur, Thorgrimsson ISL 0 Goðinn 2 1 1 20,5 936
15 13
Annija, Kotleva w ISL 0 Goðinn 2 0 0 22 966

 

Ásgeir Magnússon og Annija Kotleva voru að taka þátt í sínu fyrsta alvöru skákmóti í dag. Einnig mættu þeir Jón Aðalsteinn Hermannsson, Ari Ingólfsson og Eyþór Kári Ingólfsson á sitt fyrsta skákmót í langan tíma í dag, en þeir voru talsvert virkir fyrir um áratug. Mótið var tittölulega jafnt og allir keppendur náðu amk. einum vinning, auk yfirsetu.

Nánar á heimasíðu Goðans

- Auglýsing -