Fjöld Íslendinga teflir erlendis í sumar. Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2444) tekur þátt í Pula Open í Króatíu. Hann hefur 3 vinninga eftir fjórar umferðir.
Á morgun hefst Prag Open. Þar tefla átta Íslendingar. Það eru þeir Hilmir Freyr Heimisson (2413), Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2359), Bárður Örn Birkisson (2179), Alexander Oliver Mai (2128), Björn Hólm Birkisson (2121), Aron Þór Mai (2077), Davíð Kolka (1959) og Jóhann H. Ragnarsson (1908).
Þann 23. júní hefst HSG-Open í Hollandi. Þeir tefla Björn Þorfinnsson og Gauti Páll Jónsson. Jóhann Hjartarson teflir á Dortmund Sparkassen Meeting sem hefst 24. júní. Nánar um þessi mót síðar.
- Auglýsing -
















