Fjöld Íslendinga teflir erlendis í sumar. Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2444) tekur þátt í Pula Open í Króatíu. Hann vann í gær og hefur 4 vinninga vinninga eftir 5 umferðir. Aðeins hálfum vinningi á eftir efstu mönnum.
Sjötta umferð fer fram í dag. Þá teflr slóvakíska FIDE-meistarann Vladimir Bochnicika (2327).
Í dag hefst Prag Open. Þar tefla átta Íslendingar. Það eru þeir Hilmir Freyr Heimisson (2413), Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2359), Bárður Örn Birkisson, (2179), Alexander Oliver Mai, (2128), Björn Hólm Birkisson (2121), Aron Þór Mai (2077), Davíð Kolka (1959) og Jóhann H. Ragnarsson (1908).
Dagana 23.-25. júní fer fram HSG-Open í Hollandi. Þeir tefla Björn Þorfinnsson og Gauti Páll Jónsson.
Jóhann Hjartarson teflir á Dortmund Sparkassen Meeting sem fram fer 24. júní-2. júlí.
Hannes Hlífar Stefánsson teflir á móti í Tenerife sem fram fer 25. júní – 2. júlí.
















