Þessa dagana fer fram atskákkeppni undir nafninu Tech Mahindra Global Chess League. Um er að ræða liðakeppni þar sem 6 leikmenn eru í hverju liði og í hverju liði eru aukinheldur tvö kvennaborð.

Mótið fer fram í raunheimum með atskákfyrirkomulagi og margir af sterkustu skákmönnum heims eru mættir til leiks.

Í sjöundu umferð fór fram algjörlega stórkostleg skák á milli þeirra Viswanathan Anand og Magnus Carlsen. Eitt af merkilegri endatöflum seinni ára kom upp í þessari skák.

Hér hafði Magnus fórnað peði til að virkja svarta kónginn. Hvítur á ekki marga vænlega kosti og verður líklega að láta slag standa og leika 57.b5 til að fá frípeð á a-línunni, sem er einmitt það sem Anand gerði.

57…axb5 58.a6 Kd2 59.a7 Bd5

Hér á Anand auðvelt jafntefli. Hann getur skákað með riddara sínum á f1 og farið svo til baka á g3. Málið er að svartur verður að hafa kóng sinn á d2 til þess að mótspil með …b4 framrás og í kjölfarið árás c-peðsins gangi upp. Peter Svidler vildi meina að Anand hefði líklegast séð þetta jafntefli…en fundið „sniðugra“ jafntefli.

60.Rxf5??

Þrátt fyrir að Anand sé meira og minna hættur að tefla á hæsta leveli þá gaf Peter Svidler honum þvílíkt „credit“ og vildi meina að Anand hefði reiknað sig í jafntefli hér. Ef horft er á myndbandið að neðan frá beinum skýringum má sjá skemmtilegt augnablik á 2:22:00 þar sem Anand brosir til Carlsen. Brosið kom eftir leikina.

60…exf5 61.e6 b4 62.e7 bxc3+ 63.Ka2 c2 64.a8=D

Hér hélt Anand að hann væri að ná jafntefli þar sem eftir

64…Bxa8 65.e8=D

þá er 65…c1=D er svarað með 66.De3!! og hvítur verður patt í kjölfarið!

Magnus sá þetta á endanum og reyndi að vinna. Hann lék 65…Be4? sem er þokkaleg tilraun en gefur hvítum aftur jafntefli. Svartur átti aðeins eina vinningsleið. Við komum aftur að því.

Eftir 65.Be4? lék Anand 66.Dd8 Bd3 en missti hér af bestu leiðinni.

Í skákinni lék Anand 67.Dd4? sem missir skákina í tap. Ef svartur fær sér drottningu á hvítur ennþá patt trikkið góða og því lék Magnus…

67…c1=R!!

Ótrúlegt!! Magnus vekur upp riddara til að forðast pattið. Anand á aðeins einn leik.

68.Ka3

Sem Magnus svaraði að bragði með

68…c3

Svarta c-peðið verður ekki stöðvað. Riddarinn og biskupinn vinna frábærlega saman og hvíta drottningin finnur engar leiðir til að skáka. Hvíta f4 peðið er í mörgum línum fyrir og svartur hefur jafnvel tíma í vissum stöðum að leika Re2, Be4, Ke3 og aðeins þá ýta c-peðinu! Mögnuð staða. Lokin urðu…

69.Db6 Re2 70.Dxh6 c2

og Vishy gafst upp! Ef hvíta drottningin drepur nýju svörtu drottninguna sem verður til út frá c-peðinu þá er svartur tímanlega með leikina Re2xf4-g6 og stoppar h-peðið.

En þar liggur sannleikurinn! Við sögðum áðan að 67.Dd4? hefði misst skákina í tap!

67.Db6 hefði náð jafntefli! Munurinn liggur í einu tempói. Aftur…ef svartur fær sér drottningu á hvítur patt trikk. Ef svartur fær sér riddara eins og í skákinni 67…c1=R+ 68.Ka3 Re2 69.Dxh6 c3 70.Dc6 c2 71.h6 c1=D 72.Dxc1 Kxc1 73.h7

Og það er hvítur sem á vinningssénsa! Lomonosov töflureiknarnir segja reyndar að staðan sé jafntefli en það á einungis við ef tvær tölvur eru að tefla! Af þeim ástæðum hefði hvítur líklega orðið að vekja upp drottningu eftir 67.Db6 og sætta sig við pattið!

En þarmeð er ekki öll sagan sögð! Ég sagði að í stöðunni þar sem Carlsen lék 65…Be4? hefði einungis verið ein vinningsleið!

Í þessari stöðu er eini þvingaði vinningurinn 65.c3!! sem einfaldlega losar pattið og svartur fær óverjandi nýja drottningu. Geómetrían á borðinu er ótrúleg. Hvíta drottningin nær ekki að skáka neitt af neinu viti, biskupinn endar á að bera fyrir og hvíti kóngurinn kemst ekki að peðunum. Svartur fær nýja drottningu og vinningsstöðu.

Algjörlega magnað endatafl úr tefldri skák! Yfirleitt eru svona töfrar í stöðum sem skákdæmahöfundar finna upp!

Skákin í heild sinni:

Hér er hægt að sjá „beinar skýringar“ þegar endataflið fór fram. Byrjar á 2:19:00

Skýringar Peter Svidler á þessu endatafli eru vægast sagt stórkostlegar!

- Auglýsing -