Hilmir Freyr Heimisson minnti á sig í GM flokknum í České Budějovice og vann fína skák í dag. Vignir Vatnar Stefánsson og félagar áttu þokkalegan dag í opna flokknum en Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir átti erfiðaran tvöfaldan dag í Porticcio á Korsíku.
Hilmir tefldi skemmtilega dýnamíska broddgaltarskák þar sem styrkleikar hans fengu að njóta sín. Skemmtileg skiptamunsfórn í miðtaflinu gerði út um skákina.
Vignir er stigahæsti keppandinn á opna David Hak (2203) á efsta borði. Upp kom Benko bragð sem Vignir er einmitt búinn að gera góð skil með „repertoire“ á VignirVatnar.is, rétt að mæla með því! Vignir fékk fína stöðu og líklega vinningsstöðu fljótlega í miðtaflinu. Hann lék hinsvegar skelfilega af sér í 25. leik í mun betri ef ekki vinningsstöðu og tapaði manni. Vignir barðist vel en náði ekki að þyrla nægjanlegu ryki í andstæðingin til að snúa á hann. Vignir hefur því 2 vinninga af 3.
Bárður Örn Birkisson (2199) er einnig kominn með 2 vinninga eftir jafntefli í skák dagsins. Tékkinn Radovan Hurtuk (2007) var kominn með mun betra tafl og ákvað að halda upp á það með því að bjóða jafntefli. Fín leið til að bæta sig aldrei að þora ekki að reyna að vinna skákir! Bárður tók jafnteflinu!
Benedikt Briem (2127) hefur einnig 2 vinninga. Hann gerði aftur jafntefli í dag við stigalágan andstæðing, Tomas Pisar (1749). Sá andstæðingur og andstæðingurinn í gær eru báðir fæddir 2006 og eiga greinilega inni stigahækkun, klassískt dæmi um underrated skákmann. Ef eitthvað er var það Benedikt sem var með aðeins verra í endataflinu og þurfti að vinna fyrir jafnteflinu.
Björn Hólm Birkisson (2137) er einnig kominn með tvo vinninga. Hann fékk hvítt á ungan Tékka fæddan 2007, Matej Slaby (1916). Sá tékkneski beitti villtu afbrigði, „El Columpio“ sem býður hvítum upp á að tvöfalda h-peð svarts en svartur fær biskupaparið. Skemmtilegt og dýnamískt afbrigði þó það sé vafasamt. Í þetta skiptið misheppnaðist afbrigðið algjörlega og Björn fékk algjöra rjómastöðu.
Alexander Oliver Mai (2137) er einnig með tvo vinninga eftir umferð dagsins. Hann lagði að velli Vaclav Novak (1899). Tékki sá er að nálgast vizkualdurinn og því ekki alveg jafn hættulegur og margir af þessum yngri skákmönnum sem strákarnir hafa verið að mæta. Alexander tefldi drekann og Novak virtist ekki gera sér grein fyrir að drekar spúa eldi. Svartur fékk stöðulega mun betra tafl eftir taktískar aðgerðir snemma miðtafls.
David Kolka (1938) hafði svart gegn Austuríkissmanninum Julian Leitgeb (2198). Sá austurríski náði sér í umframpeð sem hann náði að hanga á fram í endataflið og lét það telja.
Aron Þór Mai (2037) komst á blað og hristi af sér ryðið. Hann var reyndar með mun verra tafl gegn Jan Dlasek (1646) en sá tékknéski lék af sér þegar hann drap á f3 og tapaði manni. Aron kláraði dæmið og kominn með 1 af 3.

Landsliðskonan Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1942) tefldi tvöfalda umferð í gær. Eftir gott jafntefli í fyrstu umferðinni reyndist dagurinn í gær erfiður. Í fyrra skákinni tapaði Hallgerður gegn Sofiu Hryzlovu (2261) frá Sviss og í seinni var það hinn franski Ludovic Grosse (2056) sem einnig náði sér í sigur.
Í fjórðu umferðinni í dag vann Hallgerður Helga sigur á Antoine Podvin (2081)
Tvöföld umferð er á morgun.
















