Enn gekk nokkuð vel í České Budějovice í opna flokknum. Vignir og Benedikt unnu báðir sínar skákir og á Vignir séns á að ná skiptu efsta sæti en Benedikt er enn taplaus á mótinu! Hilmir Freyr er ekki að ná sér á strik í GM flokknum og tapaði í dag. Josef Omarsson tefldi tvöfalda umferð í Serbíu og Guðmundur og Hannes hófu leik á Spáni.
Vignir Vatnar Stefánsson (2487) er kominn á gott skrið og lagði pólska alþjóðlega meistarann Piotr Dobrowolski (2417). Upp kom kóngsindverji og þar sem Vignir fékk kannski lítið. Í samtali við Skak.is hafði Vignir þetta að segja
„Ja, hver sagði að skák ætti að vera eitthvað skemmtileg? ég var ekki búinn að kortleggja hann neitt sérstaklega, Ég lék þessum Bf4 leik áður í skák á móti IM Sam Collins á Írlandi. Þá skák vann ég þannig að ég ákvað að endurtaka það þó þetta gefi svosem ekki mikið á hvítt. Náði svo að pressa vel á hann“
Pressan fólst í aðeins betra hróksendatafli. Vignir hafði fleiri peðakeðjur en mjög virkan hrók á sjöundu reitaröð. Þó var jafnt á peðum. Svartur gaf peð til að virkja hrók sinn, báðir fengu tvö samstæð frípeð en það voru líklega lokamistök svarts. Merkilegt nokk er 41…gxh4! mun betri leikur en 41…Kxh4? eftir það tefldi Vignir framhaldið skínandi vel og náði í sinn annan vinning á mótinu úr hróksendatafli.
Vignir hefur nú 6,5 vinning af 8 mögulegum og mætir Indverjanum Ameya Audi (2390) í lokaumferðinni með svörtu. Vignir þarf að vinna skákina til að ná Audi að vinningum en hann hefur verið að „aka“ vinningunum heim og er með 7,5 vinning, vinning á undan Vigni. Væri flott hjá Vigni að vinna, ná efsta sætinu ogná sér í stigagróða.

Eini taplausi keppandinn í íslenska hópnum er Benedikt Briem (2165). Hann mætti Tékkneskum skákmanni, Jan Lajbl (2212). Upp kom ítalskur leikur og ekki er hægt að segja að byrjanataflmennska Benedikts hafi verið til útflutnings!
Preppið klikkaði eitthvað í dag en ég skildi allt eftir á vellinum! Þetta var ákveðinn rússíbani en betri leikmaðurinn vann í dag!
Þrátt fyrir að Benedikt hefði ekki alveg á hreinu hvað hann væri að gera fékk hann fínasta spil og var kominn með gott frumkvæði fyrir peð. 18…g5?! var fullur af bjartsýni æskunnar en heldur glannalegur leikur, ekki ósvipað og þegar Alexander Oliver lék svipuðum leik fyrr á mótinu. Benedikt slapp þó betur og var ekki refsað, þess í stað fór í hönd mikil barátta. Sem betur fer rann Lajbl á svellinu í 23. leik og Benedikt fékk kolunnið tafl.
Benedikt er taplaus með 6 vinninga af 8 og +57 stig á leiðinni inn í íslenska „stigahagkerfið“
Bárður Örn Birkisson (2199) er næstur á blaði eftir 8 umferðir með 5 vinninga. Þokkalegt mót hjá Bárði en kannski full mikið af jafnteflum við stigalægri andstæðinga. Í dag gerði hann jafntefli við Daniel Prazak (2082). Því skal þó haldið til haga að mjög mikið af ungum og efnilegum keppendum eru á þessu móti, Prazak t.d. fæddur 2008. Ekki reyndi þó mikið á þann unga þar sem skákin var nánast ótefld.
Björn Hólm Birkisson (2137) er næstur með 4,5 vinninga eftir jafntefli í skák dagins. Björn slapp þar með skrekkinn, andstæðingur hans Martin Vaculik (1963) vann peð tiltölulega bótalaust og hefði átt að sigla vinningnum heim. 31.Dxc6 hefði meira og minna klárað dæmið. 32.Dxa6 kemur næst og ber fyrri allar skákir á f1 í kjölfarið. Jafntefli þess í stað niðurstaðan.
Alexander Oliver Mai (2137) og David Kolka (1938) töpuðu báðir í dag en þeir hafa báðir átt góða spretti á mótinu. Þeir hafa báðir 4,5 vinninga af 8 eins og Björn Hólm.
Kolka tapaði tveim mönnum fyrir hrók snemma í miðtaflinu gegn Vitezslav Priehoda (2257) frá Tékklandi. Eftir það var þetta bara spurning um smá raðtækni sem vafðist ekki fyrir Tékkanum.
Alexander var um tíma efstu Íslendingana en hefur aðeins gefið eftir. Krítíska augnablikið gegn Austuríkissmanninum Julian Leitgeb (2198) kom í 17. leik
Hér átti Alexander ótrúlega skemmtilega leið 17.Dh5+! Ke7 (ef …Kd8 þá Bc3 og f6 er oní með skák. 18.Bb4+ d6 19.Dxd5 cxd5 20.0-0-0! og skiptamunur fer í hafið.
Þess í stað lék Alexander 17.Bc3? og eftir 17…Hxc2 er hann u.þ.b. 17 peðum undir og með skíttapað 🙁 Sannarlega vendipunktur í skákinni!
Aron Þór Mai (2037) gerði sitt fjórða jafntefli í röð en hann er lentur í U2000 móti Tékka eins og áður sagði. Að þessu sinni fékk hann Josef Horyna (1786). PGN skráin er greinilega með svokallaða DGT-villu, þ.e. leikjaröðin er ekki rétt þar sem svarta drottningin er t.d. tímabundið oní. Uppskiptaafbrigðið í kóngsindverja virðist engu að síður hafa orðið fyrir valinu og tiltölulega stutt jafntefli.
Það verður gaman að sjá baráttuna á milli Arons og Bárðs um íslenska-jafntefliskónginn í Ceske Buejovice!

Hilmir Freyr Heimisson (2404) er heillum horfinn í Ceske eftir frábært mót í Prag. Eitthvað var 17. leikurinn krítískur hjá íslensku strákunum í Ceske í dag. Hilmir lék ónákvæmt í teóríunni gegn Austurríkismanninum Laurenz Borrman (2292) og eftir 17.Rh5! var hvítur allt í einu kominn með óstöðvandi sókn og ekki aftur snúið.

Josef Omarsson (1710) tefldi tvöfalda umferð í Paracin í dag. Josef er númer 131 af 132 keppendum í styrkleikaröð morgunljóst að róðurinn verður erfiður. Hann tapaði gegn Steven Vanden Bussche (2082) frá Belgíu í morgunumferðinni og Indy Southcott-Moyers (2086) frá Englandi í þriðju umferðinni.

Þeir félagar Hannes Hlífar Stefánsson (2531) og Guðmundur Kjartansson (2429) hófu leik í dag í Valencia á Spáni en ekki var búið að uppfæra chess-results að svo stöddu en heimasíða mótsins kom til bjargar!
Hannes vann sigur með svörtu gegn Guillermo Beneyto De Ramon (1854). Hannes fékk gjörsamlega gjörtapað tafl eftir glæsilega taflmennsku Spánverjans sem fórnaði manni á f7 reitnum og í kjölfarið skiptamun fyrir myljandi sókn. Hannes þurfti að hafa sig allan við en slapp með skrekkinn þegar sá spænski gaf færi á riddaragaffal. Hafði hann þá þegar misst af vænlegum leiðum í tilraun til þess að „komast í sögubækurnar“ fyrir glanspartý.
Erfið fæðing hjá Hannesi en vel sloppið en þetta sýnir kannski hvað það er orðið erfitt að „hanga á stigunum“ í dag. Jafnvel stórmeistari getur ekki gengið að því vísu að ná auðveldum sigri gegn 1800 stiga skákmanni! Því skal þó haldið til haga að þessi er fæddur 2010 og á því greinilega mikið inni!
Guðmundur fékk líka svart, gegn Abdelali Oulaili (1761) frá Marokkó. Guðmundur fékk heldur auðveldari dag á skrifstofunni. Andstæðingur Gumma tefldi veikt gegn Sikileyjarvörn og svartur fékk fljótlega að leika …d5 ásamt öðrum stöðulegum mistökum hjá hvítum og skákin var allan tímann bara spurning um raðtækni hjá svörtum.














