Guðmundur að tafli. Mynd: Fiona

Guðmundur Kjartansson heldur áfram að hala inn vinningum á opna mótinu í Valencia. Guðmundur hefur unnið allar fimm skákir sínar til þessa á mótinu. Hannes Hlífar Stefánsson vann einnig sína skák og hefur „einn niður“ alls 4 vinninga. Hinn efnilegi Josef Omarsson náði glæsilegum sigri í Serbíu!

Hannes gegn Guðmundi á Íslandsmótinu nú í ár

Þeir félagar Hannes Hlífar Stefánsson (2531) og Guðmundur Kjartansson (2429) sitja báðir að tafli í Valencia á Spáni þessa dagana. Guðmundur hafði 4/4 fyrir umferðina en Hannes 3/4.

Guðmundur mætti ungum og efnilgum Spánverja, fæddum 2010, Jaime Ray Martinez (2372). Greinilega mikið efni þar á ferð og hann náði að byggja upp smá pressu ða Guðmund þó að okkar maður væri aldrei í neinum stórum vandræðum. Endataflið var að mestu í jafnvægi, hvítur með smá frumkvæði ef eitthvað er.

Skákin virtist vera að fjara út í jafntefli en Guðmundur er oft þrjóskur og teflir fram í rauðan dauðan. Það reyndist rétt ákvörðun í þetta skiptið. Sá ungi fann leið til að leika af sér í steindauðu hróksendatafli og góður vinningur í hús hjá Guðmundi!

Hannes hafði líka svart, þeir hafa alltaf haft sömu liti til þessa á mótinu. Með hvítt var argentíski alþjóðlegi meistarinn Caroline Lujan (2288) sem Guðmundur mætti fyrr á mótinu.  Hannes tefldi af fítonskrafti gegn ítalska leiknum og blés strax til sóknar með 6…g5!? Sú argentíska brást illa við, Hannes fékk snemma betra tafl og „kall í hafið“ hjá hvítum eftir gráðugt peðsát í 16. leik. Eftir þessi viðskipti var þetta bara spurning um smá raðtækni og fáir betri en Hannes á því sviði.

Íslendingarnir í góðum málum í Valencia á Spáni! Í 6. umferðinni er Guðmundur á fyrsta borði og mætir þar pólska alþjóðlega meistaranum Radoslaw Barski (2409). Hannes fær hvítt á litháenska stórmeistarann Ilmars Starostits (2403).

Josef í Paracin (Mynd: Omar)

Josef Omarsson (1710) stimplaði sig rækilega inn á mótinu í Paracin í Serbíu. Hann lagði kínverskan alþjóðlegan meistara kvenna WIM Fanghui Sun (2228). Glæsilega gert hja Josef!

UPPFÆRT: Skak.is hefur borist skákin með skýringum frá Omari. Þeir eru greinilega að undirbúa sig vel fyrir skákir og leggja mikla vinnu í þetta lærdómsríka mót fyrir Josef!

Um var að ræða Grunfeld. Josef stýrði hvítu mönnunum og voru þeir feðgar búnir að undirbúa nokkuð djúpt í afbrigði sem sú kínverska hafði teflt áður. Josef fékk fína stöðu en lék ónákvæmt með Bf3 og missti aðeins tökin en staðan var orðin jöfn stuttu síðar.

Í endataflinu hafði Josef aðeins virkar menn og hættulegra frípeð. Sú kínverska var ekki vandanum vaxin í tímahrakinu en Josef tók öll sín færi þar enda íslensku krakkarnir að jafnaði mjög færi í styttri tímamörkunum. Flottur sigur gegn möjg stigaháum andstæðingi!

 

- Auglýsing -