Guðmundur Kjartansson kláraði vel heppnað alþjóðlegt mót í Valencia á Spáni í dag. Guðmundur gerði jafntefli í lokaumferðinni og endaði í 2. sæti á stigum með 7 vinninga af 9, glæsilegur árangur þar! Hannes Hlífar endaði með stæl og vann flottan sigur með svörtu mönnunum. Adam og Josef Omarssynir hófu leik á Serbia Open í dag.

Íslensku landsliðsmennirnir Hannes Hlífar Stefánsson (2531) og Guðmundur Kjartansson (2429) luku taflmennsku á opnu móti í Valencia, Spáni í dag. Guðmundur hafði 6,5/8 fyrir lokaumferðina en Hannes 5,5/8.
Guðmundur mætti spænska alþjóðlega meistaranum Inigo Lopez Mulet (2404) í lokaumferðinni. Guðmundur hafði svart og var vel undirbúinn gegn Catalan-byrjun Spánverjans. Guðmundur fékk fína stöðu og mjög afgerandi frumkvæði eftir vel heppnaða byrjun. Hann náði ekki að fylgja því eftir með nægjanlega kröftugum leikjum og hvítur náði að sleppa í endatafl með þungum mönnum þar sem engin leið var áfram og jafntefli niðurstaðan.
Baadur Jobava vann sína skák á efsta borði og vann mótið með 8 af 9 en Guðmundur var með bestu oddastigin af þeim sem fengu 7 vinninga og hafnar í 2. sæti á mótinu, glæsilegur árangur. Guðmundur hækkar um tæp 14 stig fyrir þennan árangur.
Hannes hafði einnig svart á FIDE meistarann Andres Luque Saiz (2286). Eftir slaka skák í gær rétti Hannes heldur betur úr kútnum. Hannes fórnaði peði fyrir biskupaparið og mikla pressu á miðborð hvíts. Hannes byggði upp pressuna með hverjum leiknum og svo fór taktíkin að fljóta og hvíta staðan brotnaði undan þunganum. Mjög flott skák hjá Hannesi.
Ágætis mót hjá Hannesi. Hann endar með 6,5 vinning í 11. sæti. Hann tapar 4 elóstigum og skrifast það einfaldlega á klaufaskap þar sem hann féll á tíma í 3. umferðinni með unnið tafl.

Þeir bræður Adam Omarsson (1843) og Josef Omarsson (1710) hófu í dag leik á Serbia Open. Adam mætti jafnaldra sínum S Rohit (2109) frá Indlandi og hafði hvítt. Bróðir hans Josef fékk svart á Tyrkjann Batuhan Cansu (2043).
UPPFÆRT(20:20) Úrslit, myndir og skákir:

Adam mætti eins og áður sagði efnilegum Indverja. Rohit þessi hafði teflt í Paracin eins og Josef og gerði sér lítið fyrir og hækkaði um 119 skákstig! Andstæðingur Adams því í raun 2200+ skákmaður!
Adam var hinsvegar hvergi banginn með hvítu og tefldi byrjunina og miðtaflið af krafti og hafði feykilegt frumkvæði. Um tíma var eins og Indverjinn væri nánast kominn á öngulinn en það vantaði herslumuninn að finna gott rothögg í miðtaflinu. Indverjinn komst inn í taflið en aldrei nóg til að setja Adam í hættu og eftir smá baráttu í hróksendatafli varð jafntefli niðurstaðan.

Josef mætti 2000+ stiga Tyrkja eins og áður sagði. Josef hafði svart og beitti kóngsindverskri vörn gegn drottningarpeði Tyrkjans. Josef hefur lengi teflt kóngsindverjann og kann hann nokkuð vel. Tyrkinn fékk smá séns á að ná betri tafli en eftir hinn ónákvæma 18.a3?! má segja að Josef hafi aldrei verið í vandræðum. Það var einfaldlega engin leið í gegn fyrir hvítan.
Góð jafntefli hjá bræðrunum í dag! Það er áframhaldandi barátta á morgun. Adam mætir í annarri umferðinni með svörtu, CM Blaz Debevec (2077) sem er 35 ára Slóveni og vonandi á hraðri niðurleið! Josef fær svart og fær FIDE meistarann Milutin Kostic (2048) frá Serbíu, 68 ára gamall.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2373) hefur svo leik á morgun á Open Internacional CA MONTEOLIVETE á Spáni. Sasha er númer 43 í styrkleikaröð af 228 keppendum.















