Unglingameistarar Reykjavíkur. Jósef og Iðunn. Mynd: Heimasíða TR

Félagsmenn úr Taflfélagi Reykjavíkur eru í eldlínunni af þeim sem tefla nú á erlendri grundu. Aleksandr Domalchuk-Jonasson hóf taflmennsku á alþjóðlegu móti á Spáni í dag og bræðurnir Adam og Josef Omarssynir sitja að tafli í Serbíu. Iðunn Helgadóttir er svo að tafli í Póllandi ásamt Helga Pétri Gunnarssyni.

Iðunn Helgadóttir (1646) hefur setið að tafli í B-flokki á Najdorf minningarmótinu í Varsjá. Undirritaður tók þátt á þessu móti árið 2015 ásamt Sigurbirni Björnssyni og vorum við nokkuð sáttir við aðstæður og borgina.

Umferðin í dag var sú sjöunda en þátttaka Iðunnar fór framhjá fréttaritara Skak.is og er beðist velvirðingar á því. Flest lönd notast við chess-results sem býður upp á góða leitarmöguleika og því hægt að sjá hvar Íslendingar sitja að tafli hverju sinni. Najdorf mótið gerir það því miður ekki.

Í skák dagsins vann Iðunn sigur á Stanislaw Korszanski (1716) ungum Pólverja fæddur 2012. Iðunn er komin með 3 vinninga af 7 og hefur að jafnaði verið að tefla 50-200 stig upp fyrir sig. Mótherjarnir til þessa hafa allir verið pólskir og það kannski eina sem vantar upp á, fjölbreytnina.

Faðir Iðunnar, Helgi Pétur Gunnarsson (1723) situr einnig að tafli og hefur 3 vinninga eins og Iðunn.

Í áttundu umferð mætir Iðunn Grzegorz Piotrowski (1835). Helgi fær Jakub Drozdz (1643).

Heimasíða mótsins

Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2373) hóf leik á Open Internacional CA MONTEOLIVETE á Spáni. Aleksandr er númer 40 í styrkleikaröð af 227 keppendum en keppendalistinn hefur breyst örlítið frá því sem birt var í gær þegar Sasha var númer 43.

Í fyrstu umferðinni fékk hann hvítt á georgíska kvenna FIDE meistarann Lile Koridze (2140). Lile þessi er nokkuð reynd og sleip skákkona og hefur t.a.m. verið dugleg að streyma á Twitch. Við frekari eftirgrennslan kom reyndar í ljós að skákin í dag var í beinu streymi á rás hennar á Twitch hér. Reyndar þarf að vera áskrifandi til að horfa á upptökur, ég stórefast um að einhver hendi 5 dollurum í það en sá möguleiki er allavega fyrir hendi!

Ritstjórnin lét það eiga sig en sá reyndar glitta í Alexandr í annari netútsendingu

Svo virðist vera sem það „trend“ að skákmenn séu að streyma fá skákum sínum sé að riðja sér til rúms víðsvegar á skákmótum. Á Reykjavíkurskákmótinu var „streymarahorn“ þar sem fjórir skákmenn tefldu á föstum borðum. Mótið á Spáni virðist fara lengra með þetta og taldi ritstjórn alls 8 borð sem merkt voru sem „designated“ eða föst borð. Reyndar má vera að einhver borð séu af öðrum orsökum en stundum eru menn á föstum borðum vegna t.d. einhverskonar fötlunar, blindir skákmenn eða hreyfihamlaðir.

Til að gera mjög langa sögu stutta þá gerði Aleksandr jafntefli í sinni skák. Hægt er að sjá í útsendingunni frá skjáskotinu að ofan (hannahsayce). Ekki sést á borðið en augljóst var að skákin var löng og báðir aðilar voru í tímahraki í lokin.

UPPFÆRT: Skákir eru í beinni á Chess.com. Tefld var tísku-afbrigði í Catalan byrjun, Aleksandr með hvítt. Segja má að okkar maður hafi gert allt rétt, riddari á c6 og alls konar kúnstir. Hvítur vann skiptamun en missti einhvern veginn tökin á einum stað og svartur komst inn í skákina. Eftir langt endatafl tókst Aleksandr ekki að búa til vandræði, varnir svarts héldu.

Aleksandr mætir frönskum skákmanni Dani Halegua (2108) í annarri umferðinni en tefld verður tvöföld umferð á morgun.

Þeir bræður Adam Omarsson (1843) og Josef Omarsson (1710) tefldu umferð númer tvö á Serbia Open í dag.

Adam náði fínum úrslitum, gerði jafntefli með svörtu við Blaz Debevec (2077) frá Slóveníu. Adam hafði svart og tefldi vel. Hann hafði stöðulega unnið tafl flljótlega eftir byrjunina en missti þráðinn í úrvinnslunni og Slóveninn slapp í jafnteflislegt hróksendatafl. Svipað og í fyrstu umferðinni, Adam er að ná góðum úrslitum en hefði jafnvel getað náð betri!

36…Hd1!? hefði gefið fína möguleika í endataflinu.

Josef náði ekki að fylgja eftir góðum úrslitum í fyrstu umferðinni og hinn reyndi FIDE meistari Milutin Kostic (2048) hafði betur í dag í mikilil baráttuskák. Josef gerði slæm stöðuleg mistök í 12. leik og reynsluboltinn tók yfir frumkvæðið og hafði stöðuyfirburði. Munurinn liggur oft þar hjá reynslubolta gegn ungum skákmönnum. Yngri skákmenn eru hinsvegar oft ansi sleipir í taktíkinni og Josef sneri taflinu við með lunknum leik 23.He5! og hvítur allt í einu að rétta vel úr kútnum.

Josef hefði getað hamrað járnið heitt með 24.Hxe6! en vafalítið verið smeykur við 24…Dxf3 en hvítur leikur 25.Hf1! og svartur er með tapað tafl, nær engu mótspili.

Síðasti afleikurinn tapar og Josef gerði taktísk mistök í 29. leik sem sá gamli greip á lofti og hafði betur.

Áfram gakk hjá Josef sem er að safna verulega í reynslubankann og hækka á stigum í leiðinni!

Bræðurnir mæta báðir Serba í þriðju umferðinni. Adam fær CM Damjan Jamdric (2113) en Josef mætir Dragan Pantovic (2057).

 

- Auglýsing -