Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2412) og Margeir Pétursson (2423) tefla þessa dagana á flokkaskiptu móti í Póllandi, Ustron Chess Festival. Báðir eru þeir í Masters flokknum þar sem 54 keppendur taka þátt. Margeir er 10. stigahæsti maður mótsins en Aleksandr sá 13. stigahæsti.

Aleksandr mætti enska alþjóðlega meistaranum Harry Grieve (2449) í þriðju umferðinni en þeir höfðu báðir fullt hús eftir fyrstu tvær umferðirnar. Harry hafði hvítt og tefldur var spænskur leikur. Staðan hjá Aleksandr virtist í lagi en allir þungu mennirnir fóru af borðinu og gat hvítur tekið sér tíma og umkringt a-peð svarts sem var strandaglópur. Eftir að Englendingurinn vann peðið var þetta meira og minna spurning um tíma. Tap hjá Aleksandr gegn erfiðum andstæðingi.

Margeir fékk hvítt á Piotr Kjena (2235) andstæðing Aleksandr frá því í gær. Ekki skánaði taflmennskan mikið hjá Kjena sem tefldi mjög glannalega eftir furðulegan 4. leik og Margeir yfirspilaði hann eftir öllum kúnstarinnar reglum.
Eitthvað virðist þó hafa gerst í lokin og hefur Skak.is ekki aflað sér frekari upplýsinga um það. Margeir er með kolunnið tafl í lokastöðunni en útsending og heimasíða mótsins segja að svartur hafi unnið skákina. Spurning þá hvort hvítur hafi fallið á tíma, hlýtur að vera líklegasta skýringin.
Í fjórðu umferðinni fær Aleksandr Pólverjann Tymon Ochedzan (2208) með svörtu. Margeir er skráður með hjásetu í morgunumferðina.

Héðinn Steingrímsson tekur þátt 10th Annual Washington International í Bandaríkjunum. Um er að ræða hraðmót sem keyrt er á 5 dögum með 4 tvöföldum dögum. 51 keppandi er skráður til leiks og er Héðinn sjöundi í stigaröðinni.
Héðinn hafði 1,5 af 2 eftir fyrsta keppnisdag. Í fyrri skákinni í dag mætti hann bandarískum CM Justin Lee (2271). Héðinn hafði sigur í mikilli baráttuskák þar sem Héðinn hafði svart.
Í seinni umferðinni mætir Héðinn indverska stórmeistaranum Rahul Srivatshav (2481) og er sú skák í gangi þegar þetta er ritað.

Sigurður Ingason situr einnig að tafli í Búdapest á hinusögufræga First Saturday móti. Sigurður teflir í Round-Robin flokki þar sem tefld er tvöföld umferð. Sigurður er stigalægstur í flokknum og teflir um 250 stig upp fyrir sig í hverri skák.
Í áttundu umferðinni tapaði Sigurður gegn Sandor Poor (1922).
















