Í dag höfust 8 manna úrslit á Heimsbikarmótinu í Baku í opnum flokki og undanúrslit í kvennaflokki. Magnus vann með svörtu gegn Gukesh og Erigaisi gerði slíkt hið sama gegn Pragganandhaa eftir magnaða fórn. Caruana slapp með skrekkinn en hann hafði tapað tafl gegn Dominguez. Goryachkina var sú eina sem vann sína skák í kvennaflokki.

Dommaraju Gukesh (2751) – Magnus Carlsen (2835)

Gukesh kom væntanlega á óvart í byrjuninni með Jobava-London. Magnus ákvað að prófa eitthvað nýtt og lék …b6 sem gafst bara alveg ágætlega. Upp kom endtafl þar sem Magnus var með smá pressu og þar er hann algjörlega í essinu sínu. Magnus hélt að hróksendataflið væri jafntefli en hvítur þarf alltaf að passa sig eitthvað. Magnus sýndi enn og aftur hvers megnugur hann er í endatöflum og náði að pressa til vinnings.

Skemmtilegt að Evrópumeistarinn fyrrverandi Anton Demchenko fékk mjög keimlíkt endatafl upp á móti Hannesi Hlífari Stefánssyni í deildakeppninni hér á Íslandi. Sú skák endaði með jafntefli og héldu þeir eftir skákina að það væri rétt niðurstaða. Svo töluðu þeir saman daginn eftir og þá héldu báðir að endataflið væri unnið þangað til þeir skiptu báðir um skoðun daginn eftir og voru á því að staðan væri jafntefli! Skák er ekki auðveld!

Skýringar Daniel King á skákinni

Carlsen var kátur í viðtali eftir skákina

Rameshbabu Pragganandhaa (2707) – Arjun Erigaisi (2704)

Staðan hjá þeim félögum virtist vera í jafnvægi þegar allt í einu kom þruma 35…Rf5xg3!!

Hvítur varð að finna eina leikinn eftir 36.fxg3 d3 sem er 37.Kh1 en Pragga valdi 37.Bg2?

Í kjölfarið er hvítur algjörlega lamaður þrátt fyrir að vera manni yfir og drottningakaup hjálpuðu ekkert, kóngur Arjun fór yfir vígvöllinn og á endanum var hann með unnið peðsendatafl, algjörlega magnað!

Leinier Dominguez (2739) – Fabiano Caruana (2782)

Dominguez yfirspilaði Caruana eftir öllum kúnstarinnar reglum í þessari skák og hefði með réttu átt að vinna. Hann var tvemiur peðum yfir í endatafli en á einhvern ótrúlegan hátt náði Caruana að verjast og tryggja sér erfitt jafntefli.

Vidit Santosh Gujrathi (2723) – Nijat Abasov (2646)

Löng og ströng skák. Vidit reyndi í 109 leiki að brjóta niður heimamanninn en varnir hans héldu. Getur hann náð í enn ein óvæntu úrslitin?

Kvennaflokkur

 

Tan Zhongyi (2523) – Alexandra Goryachkina (2557)

Goryachkina náði að vinna með svörtu og verður að teljast ansi líkleg til að fara í úrslitin. Spurning er hvað gerist ef það verður niðurstaðan. Goryachkina er Rússi og líklegasti andstæðingur hennar í úrslitum er úkraínska skákkonan Anna Muzychuk. Goryachkina tók t.a.m. þátt í umdeildu móti sem Sergey Karjakin tók einnig þátt í, bendlað við Z-hreyfinguna og þar með í raun stuðning við stríðsbrölt Rússa.

Anna Muzychuk (2504) – Nurgyul Salimova (2403)

Muzychuk varð lítt ágengt gegn Caro-Kann vörn þeirrar búlgörsku.  Nær Salimova að halda áfram að koma á óvart?

Seinni skákin fer fram á morgun, bráðabanar á fimmtudag og svo er frídagur á mótinu föstudaginn 18. ágúst.

Upptaka af útsendingu dagsins:

- Auglýsing -