Vignir Vatnar hefur hafið taflmennsku á opnu móti í Marokkó, 4eme edition trophee S.M le Roi Mohammed VI COURONNE.
68 eru í flokknum og er Vignir númer 30 í styrkleikaröð. Stigahæstur er Azerinn Shakh Mamedyarov (2747).
Í fyrstu umferðinni mætit Vignir heimamanninum Noureddine Messala (2058) og hafði hvítt. Vignir hefur skýrt skákina inni á VignirVatnar.is
Í dag er tvöföld umferð og í fyrri skákinni hafði Vignir svart á Kúbverjann Carlos Albornoz Cabrera (2575). Vignir náði þar í gott jafntefli eftir erfiðar vörn mest alla skákina.
Í þriðju umferðinni, þeirri seinni í dag, teflir hann við alþjóðlega meistarann Ahmeet Ghasi (2506) frá Englandi.
- Auglýsing -

















