Héðinn Steingrímsson tekur þátt 10th Annual Washington International í Bandaríkjunum. Um er að ræða hraðmót sem keyrt er á 5 dögum með 4 tvöföldum dögum. 51 keppandi er skráður til leiks og er Héðinn sjöundi í stigaröðinni.
Héðinn hafði náði sér vel á strik í fimmtu og sjöttu umferð.
Í fimmtu umferðinni náði Héðinn í góðan vinning með svörtu gegn GM Alexander Fishbein
Héðinn fylgdi þessu eftir með sigri í sjöttu umferð. Góður tæknilegur sigur með hvítu, hann vann peð í miðtaflinu og hélt fullri stjórn á stöðunni
Eftir sjöttu umferðina var Héðinn orðinn efstur, hafði 5 vinninga og næstu menn 4,5 vinning. Í sjöundu umferð var komið að uppgjöri tveggja fyrrverandi heimsmeistara, Héðins og Antipov. Þeir höfðu einmitt báðir teflt á móti á Selfossi þar sem einungis fyrrverandi heimsmeistarar barna eða unglinga höfðu þátttökurétt.
Í þetta skiptið hafði Antipov betur. Athyglisvert er hvernig Antipov tefldi gegn svartreitabiskup svarts mestalla skákina og gaf peð fyrir.
Mótinu lýkur svo í dag með tvöfaldri umferð eins og venjulega. Héðinn hefur hvítt á stórmeistarann David Brodsky í fyrri skák dagsins.
















