Vignir Vatnar teflir nú á opnu móti í Marokkó, 4eme edition trophee S.M le Roi Mohammed VI COURONNE.
68 eru í flokknum og er Vignir númer 30 í styrkleikaröð. Stigahæstur er Azerinn Shakh Mamedyarov (2747).
Í gær var tvöfaldur dagur og gerði Vignir jafntefli við sterka skákmenn í báðum umferðum.
Í fyrri skákinni hafði Vignir svart á Kúbverjann Carlos Albornoz Cabrera (2575). Vignir náði þar í gott jafntefli eftir erfiðar vörn mest alla skákina.
Í þriðju umferðinni tefldi hann við alþjóðlega meistarann Ahmeet Ghasi (2506) frá Englandi. Vignir ruggaði ekki bátnum mikið og jafntefli alltaf líklegast.
Vignir fer yfir þessar skákir á VignirVatnar.is
Fyrri skákinni í dag er lokið en þar var Vignir með fína stöðu úr …Bd6 línunni í drottningarbragði sem einmitt er vel fjallað um á VignirVatnar.is. Skákin virtist stefna í jafntefli en þá kom afleikur úr karakter hjá Vigni. Honum yfirsást að riddarinn gæti bakkað á e4 í lokin.
Vignir situr nú að tafli gegn stórmeistaranum Pavel Ponkratov.















