Í dag fór fram seinni skákin í 8 manna úrslitum á Heimsbikarmótinu í Baku í opnum flokki og undanúrslit í kvennaflokki. Magnus fór áfram, sem og Caruana og Abasov en Indverjarnir Pragga og Erigaisi þurfa að tefla bráðabana. Goryachkina er komin í úrslit kvennamegin en Muzychuk þarf bráðabana gegn Salimovu.
Hér er stutt samantekt frá FIDE af fyrri skákunum
Skoðum skákir dagsins:
Dommaraju Gukesh (2751) – Magnus Carlsen (2835)
Magnus þurfti bara jafntefli og hann var ekkert að fela það. Gukesh tefldi Sikileyjarvörn gegn 1.e4 og Magnus tefldi 2.c3 afbrigðið sem hefur algjöran leiðindastimpil á sér.
Magnus fékk engu að síður aðeins verra í miðtaflinu en gaf peð til að komast í endatafl peði undir.
Ef einhver gæti unnið svona stöðu með svart þá væri það líklegast Magnus. Því miður fyrir Gukesh var það Magnus sem var að verjast og lenti hann aldrei í teljandi vandræðum.
Gukesh fought hard and certainly created his chances today, but Carlsen made the draw and will advance to the semifinals!
He will face Nijat Abasov on Saturday.#FIDEWorldCup pic.twitter.com/LrFSl0ahBv
— chess24.com (@chess24com) August 16, 2023
Úrslit: Magnus áfram 1,5-0,5
Rameshbabu Pragganandhaa (2707) – Arjun Erigaisi (2704)
Það er ekkert að slettast neitt upp á vinskapinn hjá þessum tveimur þó þeir séu í harðasta einvígi 8-manna úrslita. Þeir allavega halda rútínunni og taka göngutúra saman þó þeir séu að tefla innbyrðis!
Happy to report that they are still walking together! Let's wish both of them the best of luck tomorrow! #FIDEWorldCup pic.twitter.com/bgjrP8ilmI
— Irene Sukandar (@irene_sukandar) August 16, 2023
Erigaisi gerði eins og Magnus, tefldi 2.c3 Alapin afbrigðið gegn Sikileyjarvörn. Erigaisi reyndi mikið að skipta upp en Pragga fann tilraun í endataflinu.
Hann lokaði vissulega eigin biskup inni á d6 en jafnframt hvíta biskupinn. Hann leitaði svo færis með kóngnum á kóngsvæng og fékk þau! Mikil seigla hjá Pragga!!
Úrslit: 1-1 og förum í bráðabana
Leinier Dominguez (2739) – Fabiano Caruana (2782)
Kúbverski-Kaninn Dominguez mun vafalítið naga sig í handarbökin að hafa ekki klárað dæmið í gær. Caruana náði á einhvern ótrúlegan hátt að halda jafntefli tveimur peðum undir í endatafli í gær.
Caruana sveið landsliðsfélaga sinn með góðan biskup á opnu borði og hafði á endanum tveimur peðum meira en Leinier. Því miður voru þessi tvö peð öllu hættulegri en peðin í gær og Caruana hafði því sigur.
Úrslit: Caruana áfram 1,5-0,5
Vidit Santosh Gujrathi (2723) – Nijat Abasov (2646)
Öskubuskuævintýri heimamannsins heldur áfram. Abasov varðist frábærlega í gær og í dag tefldi hann nánast módelskák úr London-kerfinu. Hann sýndi fram á hversu hættulegur peðameirihlutinn 3 gegn 2 á drottningarvæng getur verið og sá Vidit eiginlega aldrei til sólar í þessari skák.
Abasov er því óvænt kominn í undanúrslit og að öllum líkindum hefur hann einnig tryggt sig inn í Áskorendamótið þar sem Magnus mun að öllum líkindum afþakka sæti þar.
Could this statement from @MagnusCarlsen mean that hometown hero and 69th seed Nijat Abasov will play in the Candidates?! 🤯 #FIDEWorldCup pic.twitter.com/StBI58wIpF
— Chess.com (@chesscom) August 16, 2023
Úrslit: Abasov áfram 1,5-0,5
Kvennaflokkur
Tan Zhongyi (2523) – Alexandra Goryachkina (2557)
Goryachkina þurfti bara jafntefli með hvítu og ruggaði bátnum nákvæmlega ekki neitt. Sú rússneska skipti upp á öllu sem hreyfðist og sú kínverska fékk aldrei möguleika á að tefla til vinnings.
Úrslit: Goryachkina áfram 1,5-0,5
Anna Muzychuk (2504) – Nurgyul Salimova (2403)
Muzychyk þurfti að verjast smá pressu í byrjun en eftir það voru jafntefli alltaf líklegustu úrslitin.
Úrslit: 1-1 og förum í bráðabana á morgun.
Bráðabanar eru á morgun fimmtudag og svo er frídagur á mótinu föstudaginn 18. ágúst.
Upptaka af útsendingu dagsins:
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar Chess.com | kvenna (skákir hefjast 11:00)
- Beinar útsendingar lichess | Kvenna















