Skákmeistari Kópavogs Vignir Vatnar Stefánsson með bikarinn. — Ljósmynd/Ingibjörg Edda Birgisdóttir

Vignir Vatnar teflir nú á opnu móti í Marokkó, 4eme edition trophee S.M le Roi Mohammed VI COURONNE.

68 eru í flokknum og er Vignir númer 30 í styrkleikaröð. Stigahæstur er Azerinn Shakh Mamedyarov (2747).

Aftur var tvöfaldur dagur í gær og tapaði Vignir báðum skákunum gegn erfiðum andstæðingum.

Eins og farið var yfir í gær hafði Vignir fína stöðu úr …Bd6 línunni í drottningarbragði í fyrri skákinni. Vignir fjallar einmitt vel um þessa línu á VignirVatnar.is. Skákin virtist stefna í jafntefli en þá kom afleikur úr karakter hjá Vigni. Honum yfirsást að riddarinn gæti bakkað á e4 í lokin og stórmeistarinn Elshan Moradiabadi nýtti sér mistökin.

Í seinni umferðinni mætti Vignir mjög sterkum rússneskum stórmeistara, Pavel Ponkratov. Rússinn tefldi dýnamískan broddgölt og staða hans sprakk út á réttum tíma.

Vignir fer yfir þessar skákir á VignirVatnar.is

Vignir situr nú að tafli gegn heimamanninum CM Marouane Fillali (2252) og hefur svart. Einföld umferð í dag og svo aftur tvöföld umferð á morgun.

- Auglýsing -