Héðinn Steingrímsson tók þátt já 10th Annual Washington International í Bandaríkjunum. Um var að ræða hraðmót sem keyrt var á 5 dögum með 4 tvöföldum dögum. 51 keppandi var skráður til leiks og var Héðinn sjöundi í stigaröðinni.
Héðinn endaði síðasta daginn á tveimur traustum jafnteflum við stórmeistara.
Í áttundu umferð hafði Héðinn hvítt á stórmeistarann David Brodsky. Skákin var í jafnvægi lengst af en Héðinn fékk einhver færi í kringum tímamörkin. Mögulega hefði hann átt að taka peðið á a7.
Í seinni skákinni hafði Héðinn svart á Úzbekann Djurabek Khamrakulov og náði nokkuð öruggu jafntefli.
Héðinn endar því í 3-11. sæti en endar í 7. sæti á stigum, sama og styrkleikaröðin sagði til um. Héðinn hækkar um 3 elóstig fyrir árangurinn.
- Auglýsing -
















