Íslensku keppendurnir á Ustron Chess Festival í Póllandi gerðu báðir jafntefli í sínum skákum í dag, báðir höfðu þeir hvítt gegn stigalægri skákmönnum.
Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2412) og Margeir Pétursson (2423) tefla á flokkaskiptu móti í Póllandi, Ustron Chess Festival. Báðir eru þeir í Masters flokknum þar sem 54 keppendur taka þátt. Margeir er 10. stigahæsti maður mótsins en Aleksandr sá 13. stigahæsti. Sjöunda umferðin fór fram í dag.

Aleksandr hafði 4,5 vinninga af 7 og eygði möguleika á áfanga að alþjóðlegum meistaratitli með góðum endaspretti. Hann hafði hvítt á Witold Klepek (2240) og fékk ágætis stöðu úr byrjuninni en lenti í erfiðri vörn eftir of mikla veikingu á hvítu reitunum eftir 16.g3. Andstæðingur Aleksandr gekk á lagið og fékk stórhættulega færi og vann svo peð.
Staðan hjá hvítum var korter í töpuð en Aleksandr náði með seiglu að komast í hróksendatafl peði undir sem hann hélt.
Aleksandr hefur 5 vinninga og IM áfanginn er ekki í boði allavega á þessu móti en virðist aðeins vera tímaspursmál. Í lokaumferðinni fær Sasha svart á Pólverjann og FIDE meistarann Andrej Lepic (2202).

Margeir fékk hvítt á pólskan andstæðing Bartlomiej Rog (2193) í umferð dagsins. Taflið hélt nokkurn veginn í jafnvægi. Margeir fékk aðeins betra en þurfti að verjast smá frumkvæði andstæðingsins á kóngsvæng. Eftir hrókakaup var jafntefli samið.
Margeir hefur því 3 vinninga og mætir heimamannaki, Pawel Flak (2158) í lokaumferðinni.















