Vignir að tafli

Vignir Vatnar tefldi á opnu móti í Marokkó, 4eme edition trophee S.M le Roi Mohammed VI COURONNE. 68 voru í flokknum og var Vignir númer 30 í styrkleikaröð.

Í áttundu umferð í gær tapaði Vignir fyrir Marin Bosiocic (2541) á svekkjandi hátt. Á einum stað átti Vignir sterkan leik.

36.Hd7 hér hefði verið ansi sterkur. Staðan hélst jöfn en skákin fór svo í endatafl með mislitum biskupum. Vignir taldi taflið tapað, sem það líklega var.

Ef svartur leikur hér 47…f5 er of langt á milli peðanna og svartur vinnur. Þess í stað lék Bosiocic 47…Kg8?? sem Vignir svaraði með versta mögulega afleiknum, hann gafst upp!

Hvítur hefur allt í einu tíma að leika Bf6 og fara svo með kónginn í b-peðið og mynda virki (e. fortress).

Lokaumferðin var frekar stutt skák þar sem keppendur endurtóku leiki þrisvar og jafntefli undirritað við IM Andre Ventura Sousa (2445) frá Portúgal.

Vignir endaði með 4,5 af 9, ekkert sérstakt mót á hans mælikvarða en ekki langt frá pari. Vignir tapar um 5 elóstigum á þessu móti en fær fína innlögn í reynslubankann!

Litháinn Paulius Pultinevicius (2525) vann mótið nokkuð óvænt með 7,5 vinning af 9. Mamedyarov kom svo næstur með 6,5 vinning ásamt tveimur öðrum.

Vignir fer hér yfir þrjár síðustu skákirnar

- Auglýsing -