Guðmundur Kjartansson. — Ljósmynd/Ómar Óskarsson

Landsliðsmaðurinn Guðmundur Kjartansson (2458) tefldi tvær umferðir í dag á Northumbria Masters Í Newcastle, Englandi. Guðmundur er stigahæstur af 28 keppendum.  Aðrir stórmeistarar á mótinu eru hinir geðþekku Englendingar Keith Arkell (2373) og Danny Gormally (2447).

Í fimmtu umferðinni, þeirri fyrri í dag, mætti Guðmundur Skotanum Ubong Archibong (2085). Guðmundur náði sér í sigur í þeirri skák sem setti upp uppgjör við Danny Gormally sem hafði vinningsforskot á Guðmund.

Guðmundur þurfti sigur með svörtu í sjöttu umferðinni til þess að ná Gormally en sá enski gaf ekki færi á sér og jafntefli varð niðurstaðan.

Gormally er því efstur með 5 vinninga af 6. Guðmundur er jafn nokkrum í 3. sæti með 4 vinninga.

Í sjöundu umferðinni mætir Guðmundur Englendingnum Matthew Forster (2045)

 

Heimasíða mótsins

Chess-Results

- Auglýsing -