Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák (Skákþings Íslands) hélt áfram í dag með 2. umferð. Það var svo sannarlega líf og fjör í skákunum að þessu sinni og mikið drama á nokkrum borðum!
Stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson er stigahæstur 36 keppenda. Titilhafar auk Braga eru IM Davíð Kjartansson, CM Bárður Örn Birkisson og svo landsliðskonurnar WIM Olga Prudnykova og WGM Lenka Ptacnikova.
Í 2 umferð fékk Bragi það verkefni á efsta borði að mæta Jóhanni Ingvasyni en Jóhann vann sér einmitt sæti í síðasta landsliðsflokki í gegnum Áskorendaflokk. Bragi fékk vænlega sóknarstöðu úr byrjuninni og á einum stað átti hann flotta leið.
Hér valdi Bragi 14.Df3 sem er fínn sóknarleikur. Athyglisvert hefði verið að leika 14.Rxd7! þar sem hinn eðlilegi 14…Rxd7 strandar eiginlega á 15.dxc5 15.bxc5
Og hér ætti hvítur tvöföldu biskupsfórn Laskers, drepa á h7 svo Dh5+ og svo Bxg7 og í framhaldinu hoppar hrókurinn inn gegnum f3 reitinn. Þekkasta dæmið er úr skák Lasker og Bauer (sjá stöðumynd að neðan)

Bragi virtist átta sig á þessu leik síðar og drap á d7, þá við betri aðstæður þar sem Df3 var svarað með 14…Db8? Svartur tapaði liði í kjölfarið og sá aldrei til sólar.
Á öðru borði gerðu þeir Björn Hólm og Davíð Kjartansson jafntefli en Davíð bauð með statískt verri stöðu en þó jafnt á liði, Björn þáði boðið.
Á þriðja borði mættust hjónin Olga Prudnikova og Andrey Prudnikov. Skemmtileg þráskák sem Andrey fann.
17…Rf3+! og í framhaldinu kom Rf3-h2-f3 hjá svörtum og Kg1-f1-g1 hjá hvítum. Ekki má taka riddarann vegna Hg8 og drottningin er af.

Skák umferðarinnar var líklegast á fjórða borði Gauti Páll Jónsson gegn Benedikt Briem. Þar var svo sannarlega líf og fjör á ferðinni eins og ritstjórnin hafði reyndar spáð í gær!
Gauti hafði hvítt og beitti 3.Bd3 afbrigðinu gegn franskri vörn. Leið sem t.d. Chessmood hafa mælt með. Benedikt var tilbúinn með fína leið gegn þessu afbrigði og það virtist trufla Gauta eitthvað í byrjuninni. Svartur jafnaði taflið og Gauti fórnaði skiptamun snemma tafl sem var líklegast óþarfi þar sem hvítur gat leikið Rde4 í stað e4 í 14. leik. Benedikt missti af fallegri leið.
Hér var 20…Rxe4! þrumuleikur. Svartur drepur tvisvar og leikur svo Df6 og hrókurinn í horninu fellur til baka. Gauti fékk í staðinn ágætis bætur með sterkt miðborð fyrir skiptamuninn. Benedikt náði þó að vinna vel úr stöðunni og var kominn hróki yfir. Ef það er einhver sem kann að sprikla þá er það Gauti Páll Jónsson!
Nú tók við spennandi kafli. 45.Hc6 og skyndilega þarf svartur að passa sig. Hinn eðlilegi 45…Db4 til að ná uppskiptum strandar t.d. á 46.Hxf6!! og svartur þarf að passa sig! Áfram tefldist 45…Dd7 46.Rxg5 hvítur hefur einhvern veginn mjög pirrandi sprikl og nær að valda máthótunina á h3. Á einhvern ótrúlegan hátt heldur hvítur áfram að sprikla hróki undir. Benedikt gaf skiptamun til baka og hafði manni yfir, vinningsstöðu.
Gauti gaf sig ekki enn og hér í 74. leik þarf svartur að passa kæruleysið. Hér hefði 74…Dxg3?? glutrað skákinni í jafntefli vegna 75.Dxh7! og hvíti kóngurinn verður patt.
Annar pyttur fyrir svart var að hann mátti helst ekki missa h-peðið og skipta upp á vitlausum stað, þá hefði hann endað með vitlaust kantpeð og staðan jafntefli ef svarti kóngurinn kemst ekki fyrst.
Benedikt tókst að fara í hárnákvæm drottningarkaup og komst í a-peðið og munaði þar aðeins einu tempói!
Bárður vann góðan tæknisigur á David Kolka með hvítu í uppskiptaafbrigði Caro-Kann og Lenka vann með drottningu gegn þremur léttum mönnum Ingvars Wu þar sem léttu mennirnir náðu ekki að vinna nógu vel saman.

Hin dramaskák umferðarinnar var á milli Jóhanns Ragnarssonar og Arnars Milutin Heiðarssonar. Arnar valdi að tefla Noteboom afbrigðið með svörtu en hefur mögulega ekki áttað sig á því að Jóhann Ragnarsson hefur mögulega teflt það manna mest með svörtu á Íslandi. Jóhann fékk betra úr byrjuninni en náði ekki að vinna úr frumkvæðinu og Arnar komst inn í skákina.
Jóhann fékk dauðafæri hér þar sem bæði Bd4 og hinn hrikalega smekklegi leikur 36.Bf8!! gefa hvítum vinningsstöðu. Þessi í stað kom 36.He5?? og svartur er kominn með unnið!
Hér þurfti Arnar að finna 39…Kg8! sem er langöruggast og vinnur lið útaf hótuninni á g2, 39…Kh7 dugir líka. Þess í stað drap Arnar og hvítur getur tekið á e5 með skák og sleppur!
Enn kom drama.
Hér verður svartur að leika 42…Kh7! og hvítur verður að taka þráskák eftir 43.Hf7+ Dxf7 44.Dxf7+ Kh6 þar sem c-peðið er of sterkt (45.Dc7? Hc6). Þess í stað lék Arnar 42…Kh5?? og er mát í 5 leikjum eftir 43.Hf5+ en nú slapp Arnar og slapp aftur við mát í 46. leik. Arnar hefði líklega átt að sætta sig við að vera bara að tefla til jafnteflis en fór að dreifa mönnunum of mikið um borðið í leit að hótunum í stað þess að stilla saman strengina.

Staðan hékk enn í jafntefli í miklu tímahraki og vörnin hjá svörtum erfið. Svartur fékk þó dauðafæri á björgun.
76…Hh2! 77.Kxh2 Dd2+ og fórnar svo drottningunni og svartur er patt! Þess í stað kom 76…Dc6?? og eftir 77.Df5 er svartur skyndilega varnarlaus. Ef hann valdar máthótun á h7 kemur Df8 og svartur er samt mát. Arnar féll á tíma. Hádramatísk skák!
Skákin skipti ansi oft um eigendur eins og sjá má á grafinu!

Roberto Eduardo Osorio Ferrer hefur verið manna duglegastur að mæta á þriðjudagsmót Taflfélags Reykjavíkur. Hann kann sitthvað fyrir sér í skákinni og átti góða sóknarskák gegn Jóhanni Jónssyni.
Fyrst fórnaði hann manni 12.dxe6!. Kannski auðveld en góð fórn þó. Hann kláraði svo vænlega stöðu með drottningarfórn.
16.Dxg4! og vann skömmu síðar þar sem riddaraskákin á e6 er gríðarlega sterk.
Úrslit:

Hægt er að nálgast skákir 2. umferðar inni á lichess hér. Einnig hægt að hala niður 2. umferð á PGN hér. Beinar útsendingar eru bara á LiveCloud (sjá link að neðan) en skákir eru settar inn á lichess eftirá.
Í 3. umferð sem fer fram á morgun klukkan 18:30 fáum við skemmtilegar skákir. Mikael Jóhann mætir Braga en þar á Bragi harma að hefna fyrir hönd Þorfinnssona! Davíð þarf að taka hjásetu eins og Benedikt Briem en aðrar skákir á efstu borðum verða miklar baráttuskákir.

Teflt verður á hverjum degi næstu daga um tvö sæti í landsliðsflokki að ári. Umferðir um helgar byrja 13:00 en á virkum dögum 18.30. Oddastigaútreikningur* ræður lokaröð sæta.
- Mótið á Chess-Results.
- Beinar útsendingar
- Lichess
- Frétt með praktískum atriðum, verðlaun, oddastig o.fl.















