Hilmir Freyr Heimisson lauk í dag leik í 10 manna lokuðum IM flokki á Copenhagen Chess Challenge. Hilmir var þriðji stigahæsti keppandinn. Fyrir lokadaginn hafði hann 4 vinninga af sjö mögulegum.
Í áttundu umferðinni mætti hann danska FIDE meistaranum Nikolai Kistrup (2354). Hilmir hafði svart og virtist nokkurn veginn jafna taflið og fá jafnt endatafl. Staðan var þó alltaf aðeins auðteflanlegri á Danann og í lokin náði hann að trikka c-peðinu sínu hættulega langt upp borðið og varnir svarts hrundu skyndilega.
Í lokaumferðinni var það svo annar danskur FIDE meistari Jens Albert Ramsdal (2379). Hilmir hafði hvítt og tefldi skemmtilega og fékk mun betra tafl, líklegast unnið tafl. Eitthvað virtist Hilmir þó seinheppinn á þessu móti og í enn eitt skiptið missti hann vænlegt tafl niður og Ramsdal náði að snúa taflinu við og að lokum hafa sigur.
Hilmir endar með 4 vinninga af 9 og tapar 15 elóstigum á þessu móti. Daninn Viktor Haamark Nilsen (2347) vann flokkinn með 6,5 vinning af 9 mögulegum.
















